#143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í
Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 gerir ráð fyrir tæplega 1.700 milljarða útgjöldum ríkissjóðs á komandi ári. Allt stefnir í hörð átök í þinginu um þessi viðamiklu og stefnumarkandi lög.
Af því tilefni mæta þeir í Spursmál þingmennirnir Grímur Grímsson frá Viðreisn og Stefán Vagn Stefánsson frá Framsóknarflokki. Þeir líta þessi mál gjörólíkum augum og munu meðal annars takast á um skattahækkanir sem stefnir í á banka, ferðaþjónustu og ökumenn.
Í þáttinn mætir líka sveitarstjórnarfólk af Suðurnesjum. Þar eru á ferðinni Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri í Suðurnesjabæ og Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Þau munu ræða fréttir vikunnar, niðurstöður Pisa-könnunar og margt fleira.
Fleiri þættir af Spursmál
- #144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ2. október 2026
- #142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu4. september 2026
- #141. - Uppgjörið1. september 2026
- #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar28. ágúst 2026
- #139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið24. ágúst 2026
- #138. - 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi21. ágúst 2026
