#144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ
Tveir bjóða sig fram til embættis forseta Alþýðusambands Íslands nú í mánuðinum en það fagnar 110 ára afmæli um þessar mundir. Þeir telja sig geta borið klæði á vopnin í erjum innan hreyfingarinnar.
Þetta eru þeir Arnaldur Grétarsson, sem starfar á skrifstofu ASÍ og Georg Páll Skúlason, formaður stéttarfélagsins Grafíu.
Í þættinum er einnig rætt við þau Brynjar Níelsson, borgarfulltrúa og fyrrverandi aðstoðarmann dómsmálaráðherra og Lísu Kristjánsdóttur, fyrrverandi aðstoðarmann forsætisráðherra.
Þar verður meðal annars farið yfir atburðarás síðustu vikna þar sem Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi barna- og menntamálaráðherra hefur upplýst hvernig honum var bolað úr ráðherraembætti á sama tíma og hann jafnaði sig eftir stóra hjartaaðgerð á Landsspítalanum.
Fleiri þættir af Spursmál
- #151. - Þjóðaröryggi og ástandið á Alþingi20. nóvember 2026
- #150. - Getur stjórn Landsvirkjunar ráðið nýjan forstjóra?13. nóvember 2026
- #149. - Eru dagar Viðreisnar taldir?6. nóvember 2026
- #148. - Íslamskir öfgamenn, óþarfir biðlistar og kosningar30. október 2026
- #147. - Veifa byssum á götum Reykjavíkur23. október 2026
- #146. - Jón Gnarr leysir frá skjóðunni16. október 2026
