#39 - Unnur Backman, babyglow, hraðaspurningar og allt um þáttaröðina Elmu

· Samfélagið, Menning & listir

Unnur Backman leikkona er gestur vikunnar og eigum við eitthvað að ræða hversu mikill töffari þessi kona er! Við förum um víðan völl og ræðum meðal annars þáttaröðina Elmu og allt ferlið í kringum hana.
Unnur er mikill fagurkeri og það er hreint dásamlegt að hlusta á hana tala um list, hönnun og fallega hluti. Hún er nýbúin að gera upp íbúðina sína og fer óhikað sínar eigin leiðir þegar kemur að stíl og innanhússhönnun. Unnur er alin upp á miklu listaheimili, dóttir myndlistarmannsins Jóns Axels Björnssonar og Eddu Heiðrúnar Backman heitinnar, leikkonu, leikstjóra og myndlistarkonu. Hún talar af mikilli einlægni um æskuna, hvernig það var að alast upp með veikt foreldri og áhrifin af því að eiga jafn sterkar og skapandi fyrirmyndir.
Hraðaspurningar í boði Mercedes-Benz eru að sjálfsögðu á sínum stað og við bjóðum tvo nýja samstarfsaðila Stílbrots hjartanlega velkomna – Sjóvá og Dineout!
Þátturinn er unninn í samstarfi við:
Sjóvá
Dineout
SPAR
Blue Lagoon Skin Science
Vitamin Well
Mercedes Benz
GIGGÓ
Húðlæknastöðin
Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu.
Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson

Stílbrot

Úr hlaðvarpinu

Stílbrot

Maya & Andrea

Allir þættir

Fleiri þættir af Stílbrot