#2 - Hermiþrá og René Girard
Hvað er hermiþrá (e. Mimetic Desire)? Hvaðan koma langanir okkar ? Hvað langar þig að langa í?
Við ræðum hugmyndir fransk-bandaríska hugsuðarins René Girard um hermiþrá, sem meðal annars fjalla um það hvaðan langanir okkar koma og hvernig þær smitast manna á milli. Af hverju verður leikfang skyndilega spennandi þegar annað barn tekur það upp? Eru nútíma áhrifavaldar að spila á eðli mannsins?
Hvernig breytist fyrirmynd í keppinaut eða samkeppni í fjandskap? Getur sundraður hópur fundið samstöðu með því að finna sér blóraböggul? Sumir vilja meina að pólitíkusar spili á þetta eðli þegar þeir búa til óvini til að sameinast gegn.
Við tengjum Girard við Biblíuna, þjóðsögur, Peter Thiel, stjórnmál, vinnustaði og samfélagsmiðla. Einnig skoðum við hvort við stjórnumst alfarið af rökhugsun eða fyrst og fremst af ríkjandi orðræðu í samfélaginu, og hvernig tengist það hugmyndum Girard?


