Stóra myndin
Stóra myndin
Endurtekur sagan sig eða rímar hún mögulega? Stóra myndin er hlaðvarp þar sem við tengjum málefni samtímans við sögu, heimspeki og mannlegt eðli. Ris og fall menningarheima, hringrás kynslóðanna, rímur sögunnar, lærdómur fortíðarinnar og margt fleira. Við erum ekki að hringsnúast í málefnum líðandi stundar heldur þysjum við út og skoðum stóru myndina. Frá Móses til nútímans. Platón, Cíceró, Rómaveldi, Dante, Machiavelli, Shakespeare, René Girard og svo framvegis. Einnig munum við ræða ákveðnar bækur, einstaka hugsuði og margt fleira.


