#1 - Ekkert nýtt undir sólinni

Geta gamlar sögur hjálpað okkur að skilja nútímann? Hver er drifkraftur sögunnar? Endurtekur sagan sig? Er tíðarandinn lifandi fyrirbæri?
Við ræðum gamlar og góðar bókmenntir og skoðum hvað helstu hugsuðir fortíðarinnar höfðu að segja. Hér má til dæmis nefna Biblíuna, Hómer, Platón, Shakespeare, Dostójevskí, Nietzsche, René Girard og sögu Rómaveldis.
Við ræðum eðli mannsins og skoðum hvernig það hefur áhrif á samfélög og þróun sögunnar. Öfund, metnaður, freistingar, vald, sjálfsblekking og hjarðhegðun, en líka hugrekki, tryggð og fyrirgefning.
Hvernig tengist þetta allt nútímanum, erum við að endurtaka gömul mistök? Samfélagsmiðlar, gervigreind og nútímastofnanir eru ný fyrirbæri, en tæknibreytingar geta gert það að verkum að maðurinn fær nýjar leiðir til að endurtaka sömu mistökin.

Stóra myndin

Úr hlaðvarpinu

Stóra myndin

Stóra myndin

Allir þættir

Fleiri þættir af Stóra myndin