Hlutfall erlendrar neyslu aldrei hærra
Í þætti dagsins beinum við sjónum að þeirri staðreynd að hlutfall kortaveltu Íslendinga sem fer fram erlendis hefur aldrei mælst hærra - og áhrifum þess á innlenda verslun. Árið 2022 var erlend netverslun Íslendinga um 23 milljarðar króna. Á síðasta ári var hún komin í 34,5 milljarða og samkvæmt mati Rannsóknarseturs verslunarinnar er búist við að hún fari í allt að 40 milljarða á þessu ári.
Rætt er við Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, og Hjalta Óskarsson, hagfræðing hjá Landsbankanum.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Vistkerfi íslenskra bókmennta20. nóvember 2026
- Deilur um umdeildan dansara19. nóvember 2026
- Á slóð gjaldþrota á veitingamarkaði17. nóvember 2026
- Stafrænt fullveldi á tímum tæknirisa16. nóvember 2026
- Sérstök endalok Hamborgarafabrikkunnar13. nóvember 2026
- Farsímasamband ekki öryggiskerfi almennings12. nóvember 2026