#269 – Fjórir dagar í kosningar en línur óskýrar
Björn Brynjólfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, fara yfir stöðuna þegar fjórir dagar eru í kosningar. Rætt er um það sem helst skiptir máli, það sem ekki hefur verið fjallað um í aðdraganda kosninga, hvort eitthvað hafi komið á óvart, skoðanakannanir og fleira. Við tökum einnig snúning á kosningaprófi Viðskiptaráðs sem yfir 10.000 manns hafa tekið þátt í, hvaða málefni brenna helst á fólki og hver ekki. Þá er tilkynnt um kosningazone Þjóðmála, en Þjóðmál mun ásamt öðrum vera í beinni útsendingu á kosninganótt og flytja landsmönnum helstu tíðindi þegar talið er upp úr kössunum.
Fleiri þættir af Þjóðmál
- #464 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Heimsókn úr Vesturheimi og brothætt staða ríkisstjórnarinnar6. október 2026
- #463 – Helgarvaktin með Andrési og Birni Inga – Bara brosa og slappa af2. október 2026
- #462 – Kaffispjall með Jóhanni Má í Wolt29. september 2026
- #461 – Helgarvaktin með Hildi Sverris og Erni – Spilaborgin að hrynja25. september 2026
- #460 – Kaffispjall með Gunnari Baldvinssyni – Mikið unnið með fjárhagslegu sjálfstæði22. september 2026
- #459 – Helgarvaktin með Árna Helga og Lilju Alfreðs – Vindurinn virkjaður, í logni18. september 2026






