Þjóðmál

Þjóðmál

Menning & listir

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

#478 – Helgarvaktin með Andrési og Erni – Erum við til fyrir ríkið eða er ríkið til fyrir okkur?

Andrés Magnússon og Örn Arnarson mæta sprækir á Helgarvakt Þjóðmála. Við ræðum um allt það helsta í stjórnmálunum, rifjum upp þingmenn sama hafa skipt um flokka á miðju kjörtímabili, óraunhæfar væntingar ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög, skattahækkanir, verktakasamninga í utanríkisráðuneytinu, skráningu Bláa lónsins, bjagaða umfjöllum um verðlagskönnun ASÍ og margt fleira. Þá tökum við fyrir fasta liði, s.s. hrós vikunnar, mál sem við þurfum að setja á dagskrá, bíómyndameðmæli og fleira.

#477 – Kaffispjall með Ingvari Þóroddssyni – Sterk bein og sterkt kaffi

Ingvar Þóroddsson alþingismaður ræðir um ákvörðun sína um að segja sig úr þingflokki Viðreisnar og ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Ingvar fer yfir aðdraganda flokkaskiptanna, kjördæmahagsmuni í Norðausturkjördæmi – þar á meðal áhrif skattahækkana á baðlón og ferðaþjónustu – og segir frá því hvernig hann telur stefnu Viðreisnar í skattamálum vinna gegn atvinnulífinu. Þá ræðum við pólitíska hugsjón hans, umboðið frá kjósendum, viðhorf stjórnmálamanna gagnvart verðmætasköpun, þráláta baráttu á milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar, hvernig hann metur eigin framtíð í íslenskum stjórnmálum og fleira.

#476 – Helgarvaktin með Herði og Þórði – Hátíðarkvöld Þjóðmála gert upp

Hörður Ægisson og Þórður Gunnarsson mæta á Helgarvakt Þjóðmála þar sem farið er yfir heitustu málin. Í upphafi er farið yfir glæsilegt Hátíðarkvöld Þjóðmála og verðlaunahafa ársins, rætt um nýtingu starfsmanna Þórkötlu á bílskúr í Grindavík og rýnt í lokasprett hlutafjárútboðs Bláa lónsins. Þá er borin saman skattastefna jafnaðarmanna í Danmörku, ákvörðun Kópavogsbæjar að lækka fasteignaskatta á fyrirtæki, stöðuna í Landsvirkjunarmálinu, nýjustu verðbólguspár fyrir komandi vaxtaákvörðun, ákvörðun ESA um að fella niður rannsókn á Lyfjaveri tveimur árum eftir húsleit og nýlegt bréf Fjölmiðlanefndar til ráðherra. Þá tökum við fyrir fasta liði eins og venjulega, gefum gjafir og kynnum nýjan leik í aðdraganda jólanna.

#475 – Kaffispjall í Bláa lóninu með Grími Sæmundsen og Sigríði Margréti

Kaffispjall vikunnar er tekið upp á Retreat hótelinu í Bláa lóninu. Þar er rætt við Grím Sæmundsen, stofnanda og stjórnarformann Bláa lónsins, og Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri félagsins, í aðdraganda hlutafjárútboðs félagsins sem fram fer í vikunni. Við rýnum í stóru spurningarnar varðandi fyrirhugaða skráningu félagsins, ástæður þess að nú er stefnt á hlutabréfamarkað, um uppbygginguna og vöxtinn framundan, kaupin á Arctic Adventure og hvernig það fer saman við rekstur baðlóna og hótela, fjárfestingar í öðrum baðlónum, fjárhagslega stöðu félagsins og fleira. Þá er einnig rætt um boðaða skattahækkanir á ferðaþjónustuna, vöxt greinarinnar á liðnum árum og stöðu hennar nú, breytt áhættumat vegna jarðhræringa og margt fleira.

#474 – Viðtal – Karl Wernersson

Við ræðum við Karl Wernesson athafnarmann í sérstökum aukaþætti. Karl hélt nýlega erindi, sem barið heitið „17 ár í súpunni“, þar sem hann rakti þau málaferli sem hafa litað líf hans í að verða tvo áratugi. Við ræðum hvernig mismundandi dómar hafa haft afdrifaríkar afleiðingar á Karl sem og aðra sem honum tengjast, ósamræmi í kerfinu, lífið á bakvið luktar dyr, fjárhagslegar afleiðingar og margt fleira sem þessu tengist.

#473 – Helgarvaktin með Þórði og Hermanni Nökkva – Götustelpur í vanda

Þórður Gunnarsson og Hermann Nökkvi Gunnarsson mæta léttir og kátir á Helgarvakt Þjóðmála. Við ræðum enn á ný um vanda Viðreisnar þar sem Landsvirkjunarmálið og staða fjármálaráðherra eru meðal annars í brennidepli auk þess sem bent er á enn fleiri dæmi sem sýna hvers konar kerfisflokkur Viðreisn er orðinn. Þá er rætt um tíst framkvæmdastjóra Flokks fólksins sem vill draga fram kjarnorkusprengjurnar, ummæli utanríkisráðherra í garð fv. forseta, stöðuna í Bandaríkjunum eftir kosningar fyrr í vikunni, nýjan þjóðarpúls, ummæli forsætisráðherra um ferðaþjónustuna og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, t.d. hrós vikunnar, bíómyndameðmæli, hraðaspurningar og fleira.

#472 – Kaffispjall með Boga Nils

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, mætir í yfirgripsmikið viðtal þar sem farið er beint í kjarnann á rekstri og framtíð félagsins. Við ræðum afkomuna og horfur í rekstri, áhrif eldsneytisverðs, flotaendurnýjun, breytta samsetningu farþega, eldfim kjaramál, samskipti við flugstéttir og áskoranir við að tryggja samkeppnishæfni án þess að skaða orðspor félagsins. Þá er einnig rætt um raunverulegt markmið fyrirhugaðrar starfsemi á Möltu, hvenær vænta megi aukinnar arðsemi, umræðu markaðsaðila um skort á leiðtogum innan hluthafahópsins, helstu vaxtartækifærin í náinni framtíð og margt fleira.

#471 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Tómasi Þór – Þar sem er reykur er eldur

Sigríður Á. Andersen og Tómas Þór Þórðarson mæta á líflega Helgarvakt Þjóðmála þar sem farið er yfir heitustu málin í stjórnmálum, efnahagslífi og samfélagsumræðunni. Af nógu er að taka, mögulegum heimsendingum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, súra stemningu innan Viðreisnar sem og skattastefnu flokksins sem segist ekki vilja hækka skatta en gerir það samt, hagræðingaraðgerðir Reykjavíkurborgar, hugmyndir um sölu á Ljósleiðaranum, komu trúaröfgamanns til landsins, svansvottaða viðburði og margt fleira. Þá eru fastir liðir eins og hrós vikunnar, hraðaspurningar og fleira allt á sínum stað.

#470 – Kaffispjall með Birni Jóni – Veraldavafstur nú og áður

Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og lögfræðingur, ræðir nýjustu bók sína Veraldavafstur, þar sem fjallað er um sögu feðganna Sveins B. Valfells og Sveins Valfells í umróti 20. aldar. Við fjöllum um sögu frumkvöðla sem áttu stóran þátt í því að móta íslenskt atvinnulíf kreppur, höft og pólitískt mótlæti, hvernig iðnaðarfyrirtæki þurftu að stunda leynilega lánastarfsemi og margt fleira. Einnig er rætt um það hvort og þá hvernig þessi saga rímar við nútímann, um hættuna á nýjum höftum, mikilvægi frjálsra viðskipta og þess að réttarríkið standi undir nafni. Þá ræðum við einnig um önnur samfélagsmál, bæði hér á landi og á meginlandi Evrópu.

#469 – Helgarvaktin með Stefáni Einar og Þórði Gunnars – Frelsisbollinn mættur og formaðurinn fer í frí

Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson á líflega Helgarvakt Þjóðmála þar sem rætt er um stóru málin. Rætt er um vandræði Viðreisnar sem mögulega eiga eftir að verða fleiri, stöðu ríkisstjórnarinnar, frí formannsins í Asíu og hrókeringar í nefndarsetum á vegum flokksins. Þá er fjallað um óeirðirnar í Frakklandi sem sumir vilja bara kalla saklaus stúdentamótmæli, mögulega rannsókn á vinnubrögðum sérstaks saksóknara, leka á trúnaðarupplýsingum sem Rúv hefur þó aldrei heyrt um og margt fleira. Þá eru fastir liðir að sjálfsögðu á sínum stað – hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.

Þér gæti líka líkað...