#473 – Helgarvaktin með Þórði og Hermanni Nökkva – Götustelpur í vanda
Þórður Gunnarsson og Hermann Nökkvi Gunnarsson mæta léttir og kátir á Helgarvakt Þjóðmála. Við ræðum enn á ný um vanda Viðreisnar þar sem Landsvirkjunarmálið og staða fjármálaráðherra eru meðal annars í brennidepli auk þess sem bent er á enn fleiri dæmi sem sýna hvers konar kerfisflokkur Viðreisn er orðinn. Þá er rætt um tíst framkvæmdastjóra Flokks fólksins sem vill draga fram kjarnorkusprengjurnar, ummæli utanríkisráðherra í garð fv. forseta, stöðuna í Bandaríkjunum eftir kosningar fyrr í vikunni, nýjan þjóðarpúls, ummæli forsætisráðherra um ferðaþjónustuna og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, t.d. hrós vikunnar, bíómyndameðmæli, hraðaspurningar og fleira.
Fleiri þættir af Þjóðmál
- #478 – Helgarvaktin með Andrési og Erni – Erum við til fyrir ríkið eða er ríkið til fyrir okkur?20. nóvember 2026
- #477 – Kaffispjall með Ingvari Þóroddssyni – Sterk bein og sterkt kaffi17. nóvember 2026
- #476 – Helgarvaktin með Herði og Þórði – Hátíðarkvöld Þjóðmála gert upp13. nóvember 2026
- #475 – Kaffispjall í Bláa lóninu með Grími Sæmundsen og Sigríði Margréti9. nóvember 2026
- #474 – Viðtal – Karl Wernersson8. nóvember 2026
- #472 – Kaffispjall með Boga Nils3. nóvember 2026






