Áttunda droppið frá war.gov
Send us Fan Mail
GEIMSÝRAN – NÝTT UFO-GAGNADROPP FRÁ PENTAGON! 🛸
Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur birt áttunda gagnapakkann í PURSUE-verkefninu. Alls 43 færslur, þar á meðal leyniþjónustuskjöl, rannsóknarskýrslur og þrjú myndbönd af óútskýrðum fyrirbærum.
Í þessum þætti köfum við ofan í það áhugaverðasta úr nýju gögnunum. CIA og sálfræðilegan hernað í kringum fljúgandi diska, 538 blaðsíðna rannsóknarskýrslu BAASS, tengsl Robert Bigelow og Harry Reid við leynilegar UFO-rannsóknir, skissur hins goðsagnakennda Lockheed-verkfræðings Kelly Johnson og óútskýrðar ratsjárgreiningar frá árinu 2023.
Hvað segja þessi skjöl okkur um áratugalanga rannsóknarsögu bandarískra stjórnvalda? Hvað hefur raunverulega verið staðfest og hvað er enn á huldu?
Við förum yfir gögnin, setjum þau í sögulegt samhengi og veltum fyrir okkur stóru spurningunum.
Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu.
http://patreon.com/Geimsýran






