Þvottahúsið og Geimsýran

Gunnar Dan

Menning & listirSkemmtunTækni

Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem gætu skilgreinst sem andleg og heimspekileg. Áskriftarþættir og aukaefni eru á http://patreon.com/geimsyran

Ertu alveg búin að missa það?

Send us Fan Mail Ertu alveg búin að missa það spurði búddíski félaginn minn og ég svaraði já takk, ég er alveg búin að missa það. Í þessum bráðskemmtilega þætti tek ég nýjustu vendingar í Mandela Effect sloppamálinu mikla. Það er ekki hægt að skálda þessa vitleysu.  http://patreon.com/Geimsýran

Áttunda droppið frá war.gov

Send us Fan Mail GEIMSÝRAN – NÝTT UFO-GAGNADROPP FRÁ PENTAGON! 🛸 Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur birt áttunda gagnapakkann í PURSUE-verkefninu. Alls 43 færslur, þar á meðal leyniþjónustuskjöl, rannsóknarskýrslur og þrjú myndbönd af óútskýrðum fyrirbærum. Í þessum þætti köfum við ofan í það áhugaverðasta úr nýju gögnunum. CIA og sálfræðilegan hernað í kringum fljúgandi diska, 538 blaðsíðna rannsóknarskýrslu BAASS, tengsl Robert Bigelow og Harry Reid við leynilegar UFO-rannsóknir, skissur hins goðsagnakennda Lockheed-verkfræðings Kelly Johnson og óútskýrðar ratsjárgreiningar frá árinu 2023. Hvað segja þessi skjöl okkur um áratugalanga rannsóknarsögu bandarískra stjórnvalda? Hvað hefur raunverulega verið staðfest og hvað er enn á huldu? Við förum yfir gögnin, setjum þau í sögulegt samhengi og veltum fyrir okkur stóru spurningunum. Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu. http://patreon.com/Geimsýran

Atlantis flotastöðinni

Send us Fan Mail Hvað ef sum þeirra UFO-fara sem sjást á himninum eru framleidd hér á jörðinni — í færanlegri stöð djúpt undir Atlantshafinu? Ný nafnlaus frásögn, birt af reikningnum OVERCLASSIFIED, lýsir nítján ára starfi innan leynilegra verkefna: endurheimtum förum, lifandi verum, blendingum og tvöföldu skjalakerfi. Þar er einnig sagt frá annarri framleiðslustöð inni í fjallgarði og upplýsingum sem jafnvel forseti Bandaríkjanna á ekki að hafa fengið. Ross Coulthart hefur vakið athygli á fullyrðingunum og tekið fram að þær séu óstaðfestar. En sagan á sér líka kunnuglegan hljóm: Árið 2023 lýsti nafnlaus 4chan-höfundur sambærilegri neðansjávarstöð sem smíðaði mannlaus för fyrir ákveðin verkefni. Í þessum þætti Geimsýrunar skoðum við báðar frásagnirnar, bakgrunn þeirra, líkindin og muninn. Eru tveir einstaklingar að lýsa sama fyrirbærinu — eða er ný saga að byggjast á þeirri eldri? Skoðum allt, trúum engu. http://patreon.com/Geimsýran

Hverjar eru þessar fjórar týpur af NHI?

Send us Fan Mail FJÓRAR TEGUNDIR – EIN LEYNDARSAGA Greys, Nordics, Reptilians, Tall Whites og Insectoids. Hverjar eru þessar verur, hvaðan eiga þær að koma og hvaða hlutverki gegna þær? Í þessum þætti Geimsýrunnar skoðum við frásagnir og fullyrðingar Eric Davis, Hal Puthoff, Charles Hall og David Jacobs, ásamt meintum leynisamningi Eisenhower við ómennskar verur. Sérstaklega beinum við sjónum að skordýralíku verunum, Mantids, sem í sumum frásögnum virðast standa efst í stigveldi ómennskrar greindar. Erum við að tala um ólíkar tegundir utan úr geimnum, fjölvíddaverur eða mismunandi birtingarmyndir sömu greindar? Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu.

Einn daginn munt þú snúa aftur heim

Send us Fan Mail Ég á ekki til orð yfir breytingarnar sem ég er að upplifa þessa dagana. Ég hef verið skrældur og stend hér berskjaldaður eins og koparvír án einangrunar. Skordýralík geimvera birtist mér og sagði mér að einn daginn muni ég snúa aftur heim. Mér hefur borist upplýsingar um tilgang minn hér á jörðu, þessari tvívíð að virðist, vaxa í jafnpóla hinna heilögu póla og elska, elska, elska. http://patreon.com/Geimsýran

Endurskilgreining á greind

Send us Fan Mail Hvernig lítur greind út án líkama? Hvers vegna gerum við ráð fyrir að ómennsk greind þurfi líkama, heila eða jafnvel farartæki? Í þessum þætti Geimsýrunnar leggjum við UFO-pólitíkina til hliðar og förum aftur að sjálfri ráðgátunni. Við skoðum plasma, sveppanet, meðvitund, greind án heila og þann möguleika að greind geti verið dreifð um umhverfið sjálft. Hvað ef við höfum allan tímann verið að leita að röngu fyrirbæri? Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu.

Sjálfhverfa, krónískt eða læknanlegt?

Send us Fan Mail Í þessu mannlega horni Geimsýrunar tek ég deepDive á sjálfhverfu. Hvað veldur henni, hvernig lítur hún út og hvað er mögulega hægt að gera til að losna undan henni? Sjúklega áhugavert að að grúska í þessu vitundarástandi sem og oft á tíðum persónueinkenni.  http://patreon.com/Geimsýran

Ég fæ ekki nóg af þessum DIRD skjölum

Send us Fan Mail Í sjötta UFO-droppinu frá WAR.GOV eru gömul rannsóknargögn frá AAWSAP/DIA sem opna ansi áhugaverða glugga inn í það sem bandaríska varnarkerfið var tilbúið að rannsaka. Þarna er að finna rannsóknir á andþyngdarafli, háþróaðri framdrifstækni, rúm-tíma verkfræði, ormagöngum, metamaterials, superconductors – og jafnvel tengingum milli heila og véla. Svo koma inn Hal Puthoff, remote viewing, psionics og furðuleg tenging við rannsóknarumhverfið í Huntsville. Eru þetta bara aðskildar rannsóknir á mögulegri framtíðartækni? Eða eru einhverjar stærri spurningar að baki? Í þessum þætti skoðum við skjölin, hvað þau segja í raun og veru – og hvað þau segja okkur um það sem menn voru tilbúnir að rannsaka þegar engin svör voru til. Skoðum allt, trúum engu.

Hver er grunnorsök alkóhólisma?

Send us Fan Mail Í mannlega horni Geimsýrunar fer ég yfir grunnorsök alkóhólisma samkvæmt minni sannfæringu. Tek það fram að stundum kemst ég að því að ég hef rangt fyrir mér, það er eini fyrirvarinn við innihald þessa þáttar. Lífið er Guð, lífið er Guð innra með mér. http://patreon.com/geimsyran

Meiosis-ferli Hins Yfirnáttúrlega og Geimsýrunar er hafið

Send us Fan Mail Þessi þáttur er fyrsti samruna þáttur Hins Yfirnáttúrulega og Geimsýrunar. Dagný og Selma hafa í dágóðan tíma haldið út hið sívinsæla Hlaðvarp Hið Yfirnáttúrulega. Þar fjalla þær um um allskonar yfirnáttúrulegt, andlegt og dulúðlegt. Ákvörðun var tekin á Heimsljós hátíðinni að efna til samruna einu sinni í mánuði og slá saman strengi undir sameiginlegum hatt Geimsýrunar og Hins Yfirnáttúrlega. Í þessum þætti rúlluðum við yfir áform hvað varðar Íslandsheimsókn Bashar, fórum yfir stórkostlega reynslu Dagnýjar sem mögulega gæti skilgreints sem etherískt brottnámstilfelli, eða einna heldur kannski einskonar starfskynning um borð í geimskip. Flott flæði á okkur sálusystkynunum og án efa aðeins byrjunin á einhverju svo stórkostlegu að það nær í raun engri átt.

Þér gæti líka líkað...