Lestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðuna
Helgi Biering ræðir við Þórunni Marel Þorsteinsdóttur sagnfræðing um rannsókn hennar á lausamennsku. Þórunn skrifaði BA ritgerð sem heitir Lestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðuna: Afbrot og siðferði á Akureyri 1810 – 1840. Eftir að einokunarverslun lauk og kaupstaðir tóku að myndast á Íslandi í upphafi 19. aldar, hófst þéttbýlismyndun þar sem atvinnuleit dró fólk að verslunarstöðunum. Þó svo að lausamennska væri ólögleg þá var fólk í þeirri stöðu samþykkt af samfélaginu sem sýnir ákveðna togstreitu milli laga og hagsmuna samfélagsins.
Fleiri þættir af Til skjalanna
- Líf kvenna á 18. öld - Rannsóknir, heimildir og miðlun28. september 2026
- Dularfullt andlát við Draugatjörn27. ágúst 2026
- Berklar á Íslandi8. júlí 2026
- Vorráðstefnur Þjóðskjalasafns Íslands26. júní 2026
- Nýr gagnagrunnur um alþingiskosningar 1874-19036. maí 2026
- Strand spítalaskipsins Sankti Páls á Meðallandsfjörum árið 189930. mars 2026
