Tölvuleikjaspjallið

Podcaststöðin

Tölvuleikir

Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.

295. Wolverine (2026)

Þrjár klær á hvorri hendi og ótakmarkað magn af bræði ... velkomin í Wolverine ... Arnór Steinn, Gunnar og Sölvi fara í saumana á nýjasta útspili Insomniac. Spilunin, karakterarnir, plottið og margt fleira! Sölvi rifjar einnig aðeins upp eldri þætti af Tölvuleikjaspjallinu, en hann er að taka maraþon á öllum þáttunum. Er eitthvað sem við gerðum í fyrri þáttum sem við gerum ekki lengur?

294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?

Stutta svarið er nei. Langa svarið er þessi þáttur. Arnór Steinn, Gunnar og Sölvi fá RES EVIL sérfræðing Tölvuleikjaspjallsins til að ræða nýjustu tölvuleikjakvikmyndina. Strákarnir fengu boð á VIP sýningu Game TíVí og fóru bókstaflega BEINUSTU leið í stúdíó að taka upp þátt. Karakterinn, uppvakningarnir, blóðið og ruglið og MARGT fleira í geðveikum þætti. Spoiler free upp að mínútu 30! FARIÐ Á ÞESSA MYND Í BÍÓ!!!

293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?

Glöggir hlustendur hafa tekið eftir því að góðkunningi þáttarins Sölvi Santos hefur dúkkað upp í fleiri þáttum en venjulega upp á síðkastið ... ... það er vegna þess að við ætlum að bæta honum í róteringu þáttastjórnenda Tölvuleikjaspjallsins! Nú erum við þrír! Fleiri þættir, fleiri gestir, fleiri leikir og meiri gleði. Tökum smá strategy leikjaspjall og tölum aðallega um STAR WARS: ZERO COMPANY!

292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september

Er búið að tala nóg um GTA VI? Ekki alveg ... Arnór Steinn og Sölvi taka helstu fréttir haustsins í brakandi ferskum þætti. God of War: Laufey, Wolverine og margt fleira!

291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif

Þó að það sé búið að leka þessu öllu þá samt - LOKSINS erum við komin með official GTA VI gameplay!!! Gunnar og Sölvi horfðu á alla kynninguna og ýttu bókstaflega á REC þegar hún kláraðist. Hughrifin verða ekki ferskari en þetta. Hvað fannst þér um GTA VI kynninguna? VIð munum svo taka fleiri þætti í haust til að hita upp fyrir leikinn sjálfann!

Prufuþáttur

Þetta er prufuþáttur - ef þú nærð að hlusta á þáttinn þá hefur smá villa hjá Spotify verið leiðrétt og það á bara eftir að eyða honum út. Góðar stundir!

290. Bee Space - íslenskur leikur - demo komið á Steam!

Þú ert býfluga og þarft að byggja jörðina upp á nýtt. Bee Space er íslenskur leikur væntanlegur á seinni hluta ársins frá framleiðandanum Polykite. Arnór Steinn settist niður með Palla og Frey frá Polykite og fékk að vita allt sem hægt er að vita um leikinn. Tjékkið á demoinu á Steam og smellið leiknum á wishlist. Njótið viðtalsins!

289. Fallout New Vegas endurgerð STAÐFEST! plús fleiri fréttir

Hættið öllu sem þið eruð að gera, NEW VEGAS FÆR ENDURGERÐ: STAÐFEST Arnór Steinn réð ekki við sig og gerði smá sóló þátt í kjallaranum. Hvað þýðir tilvonandi endurgerð á FNV og hvað er í gangi hjá Bethesda? Smá greining á nýjustu fréttum.

288. Sony hættir með diska, Xbox rekur fullt af fólki og GTA VI kostar peninga - síðasti þáttur fyrir sumarfrí!

Tölvuleikjaspjallið er í banastuði í síðasta þætti sínum fyrir langþráð sumarfrí! Tökum saman stærstu fréttir ársins, helstu leiki og tölum um að þetta er sex ára afmælisár Tölvuleikjaspjallsins! Í haust kemur þáttur númer 300 út! Hvernig eigum við að fagna? Takk fyrir að vera með okkur öll þessi ár <333

287. GTA: San Andreas

Ah shit, here we go again ... Tölvuleikjaspjallið dýfir tánnum oní nostalgíuvötnin með því að kíkja á einn besta tölvuleik allra tíma: San Andreas. VIð erum að hita upp fyrir komu GTA VI með því að skoða alla gömlu góðu GTA leikina. Bílarnir, borgirnar, karakterarnir, útvarpsstöðvarnar og MARGT fleira í stútfullum endurminningarþætti!

Þér gæti líka líkað...