126. The Last of Us - Part 1
Tölvuleikjaspjallið var tveggja ára og tveggja mánaða gamalt þegar loksins var fjallað um einn besta leik allra tíma.
Réttara sagt, endurgerð á einum besta leik allra tíma.
Jú börnin góð, í þætti vikunnar sem er góðfúslegur samstarfsþáttur með Elko Gaming, ætlum við að kafa í nýútkominn The Last of Us Part 1, þar sem grafík, bardagakerfi, hljóð og margt meira hefur fengið andskoti góða yfirhalningu.
Arnór Steinn og Gunnar ræða þetta allt saman og meira. Því miður þá einfaldlega gátum við ekki haldið þættinum höskuldarlausum, það er einfaldlega of erfitt að ræða þennan leik án þess að ræða það allra besta við hann - söguna. Við höldum því ekki aftur af neinu en látum auðvitað vita þegar við erum að spilla mikilvægum sögupunktum.
Við vöruðum ykkur allavega við.
Við mælum hiklaust með leiknum, ef þið eruð ekki enn búin að kaupa hann. Við gefum út okkar hæstu einkunn (höldum við) og segjum í stuttu máli: ef þú vilt kaupa hann og hefur efni á, ekki hika. Sérstaklega ef þú hefur aldrei spilað. Leikurinn er þess virði.
Þátturinn er í boði Elko Gaming og Hringdu.
Fleiri þættir af Tölvuleikjaspjallið
- 295. Wolverine (2026)30. september 2026
- 294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?22. september 2026
- 293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?17. september 2026
- 292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september10. september 2026
- 291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif28. ágúst 2026
- Prufuþáttur28. júlí 2026
