119. Electronic Arts hluti II - Skrýmslið nærist
Umfjöllun Tölvuleikjaspjallsins um Veldið Illa heldur ótrauð áfram. Í fyrri þætti (nr 106, mælum með) fórum við yfir upphaf fyrirtækisins og hvað var verið að bralla innan veggja fyrirtækisins fyrstu áratugina. Það var slatti.
Í þætti vikunnar fjöllum við um ástandið frá sirka 2000 til 2010. Hvað var EA að gera sem þótti svo skítlegt að innan bransans eru þau þekkt sem Evil Empire? Slatta.
Við fjöllum betur um Project Ten Dollar, "EA Spouse" málið, framkomu þeirra við starfsfólk sitt og um öll þau fyrirtæki sem EA hefur keypt og drepið yfir árin. Þau eru mörg.
EA er það vont fyrirtæki að við þurfum að gera allavega einn þátt í viðbót - sem þýðir að ef ykkur finnst við gleyma einhverju sem þarf að minnast á, þá getið þið sent það á okkur og við höfum það með í næsta.
Þátturinn er í boði Elko Gaming, Hringdu og Yay! Gjafakortaappsins.
Fleiri þættir af Tölvuleikjaspjallið
- 295. Wolverine (2026)30. september 2026
- 294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?22. september 2026
- 293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?17. september 2026
- 292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september10. september 2026
- 291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif28. ágúst 2026
- Prufuþáttur28. júlí 2026
