114. Star Wars Jedi Knight 3: Jedi Academy
Sorrí, einn Star Wars þáttur í viðbót og svo smá pása.
Já hlustendur kærir, í dag er það költ leikurinn Jedi Academy sem fær útreið frá Tölvuleikjaspjallinu. Þessi er á meðal elstu sem við höfum fjallað um, alla leið frá 2003. Þá var Arnór eitthvað að dandalast í Terra Mitica á Benidorm og Gunnar var að kenna Skaganum hvernig draga skal tölvustól yfir götu.
Í þessum þriðja og síðasta leik Jedi Knight seríunnar taka spilarar stjórn á dularfullu persónunni Jaden Korr. Þú ræður hvaða kyn og uppruna persónan hefur og ræður einnig hvort þú heldur þig sem boðbera ljóss og friðar eða daðrar við illu öfl myrku hliðarinnar.
Arnór Steinn og Gunnar ræða allt sem hægt er, bardagakerfið, hreyfingar, sögu, hrikalegan raddleik og margt, margt fleira.
Við vitum að Jedi Academy er sérstaklega vinsæll á meðal Íslendinga og því hlakkar okkur mjög til að heyra hvað ykkur finnst!
Þátturinn er í boði Elko Gaming, Hringdu og Yay! Gjafabréfa.
Fleiri þættir af Tölvuleikjaspjallið
- 295. Wolverine (2026)30. september 2026
- 294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?22. september 2026
- 293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?17. september 2026
- 292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september10. september 2026
- 291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif28. ágúst 2026
- Prufuþáttur28. júlí 2026
