103. Tiny Tina's Wonderlands
Ævintýri, sprengingar, bein og meiri sprengingar! Ef Tiny Tina sjálf væri fengin til að lýsa leiknum sínum væri það mögulega einhvern veginn svona.
En við ætlum ekki að eyða einni setningu í að lýsa stórverkinu Tiny Tina‘s Wonderlands. Við ætlum frekar að segja ykkur frá leiknum í þætti!
Það er heldur betur umfjöllunarefni vikunnar! Arnór Steinn og Gunnar eru búnir að kafa í Undraheiminn og segja hér frá öllu því helsta sem þú þarft að vita. Þátturinn er laus við allar höskuldarviðvaranir og því getur hver sem er hlustað!
Við ræðum karakterana, klassana, bardagakerfið, lúkk og margt, MARGT, fleira!
Er Tiny Tina‘s Wonderlands kominn í þína tölvu? Við mælum hiklaust með, það er NÓG að gera!
Þátturinn er í samstarfi við Elko Gaming og Hringdu.
Fleiri þættir af Tölvuleikjaspjallið
- 295. Wolverine (2026)30. september 2026
- 294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?22. september 2026
- 293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?17. september 2026
- 292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september10. september 2026
- 291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif28. ágúst 2026
- Prufuþáttur28. júlí 2026
