86. Uncharted: Drake's Fortune
Óvenjuleg ævintýri einkenna hinn afar áhugaverða karakter Nathan Drake. Það er einmitt það sem spilarinn fær í andlitið þegar fyrsti leikurinn í Uncharted fjórleiknum er settur í gang. Taumlaust ævintýri með endalausum möguleikum.
Já góðir hlustendur, þið spurðuð og við svöruðum. Hér kemur fyrsti þátturinn okkar af (að minnsta kosti) fjórum um Uncharted leikina!
Í þætti vikunnar fara Arnór Steinn og Gunnar í saumana á fyrsta leiknum, Drake‘s Fortune. Við ræðum plottið, persónur, byssuspil og margt, margt fleira.
Það fylgir því höskuldarviðvörun með þessum þætti – við hlífum engu!
Hefur þú spilað Uncharted? Spjöllum um hann!
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Fleiri þættir af Tölvuleikjaspjallið
- 295. Wolverine (2026)30. september 2026
- 294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?22. september 2026
- 293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?17. september 2026
- 292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september10. september 2026
- 291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif28. ágúst 2026
- Prufuþáttur28. júlí 2026
