84. Red Dead Redemption 2 - annar þáttur
Það er aftur byrjað að snjóa sem þýðir að það er upplagt að rifja upp tímann í Red Dead 2 þar sem maður þarf að vaða í gegnum mjaðmadjúpan snjó og flýja risastór bjarndýr.
Ójá hlustendur kærir, við erum sko heldur betur að fara að fjalla um tölvuleikinn Red Dead Redemption 2. Aftur! Glöggir aðdáendur muna að einn af okkar allra fyrstu þáttum var um þetta ótvíræða meistaraverk og okkur fannst upplagt að ræða hann aðeins aftur.
Í þetta skiptið er allt tekið fyrir. Sagan, karakterarnir, ákvarðanir og allt. Sumsé, stór höskuldarviðvörun fylgir þessum þætti.
Hver er besti kafli leiksins? Hver er verstur? Hvernig er sagan? Karakterarnir? Arnór Steinn og Gunnar fara yfir þetta allt saman.
Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Fleiri þættir af Tölvuleikjaspjallið
- 295. Wolverine (2026)30. september 2026
- 294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?22. september 2026
- 293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?17. september 2026
- 292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september10. september 2026
- 291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif28. ágúst 2026
- Prufuþáttur28. júlí 2026
