70. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir V: Mortal Kombat 2021
Jæja þá. Þeim tókst loksins að gefa út þriðju Mortal Kombat myndina. En er hún eitthvað góð? Það kemur í ljós í þætti vikunnar af Ömurlegum Tölvuleikjakvikmyndum!
Arnór Steinn og Gunnar ræða allt saman, það góða og það slæma (merkilegt nokk, það er NÓG af hvoru) við myndina og reyna að koma með gott svar við þeirri spurningu. Við höfum séð þessa karaktera áður, plottið er fjandi svipað en hér er bæði blóð og blót.
Er Sonya Blade jafn góð og Bridgette Wilson Sampras var í fyrstu myndinni? Er Liu Kang með jafn hellað hár og Robin Shou var með í fyrstu myndinni? Hvar er Johnny Cage?
Öllum þessum spurningum verður svarað. Engar áhyggjur.
Hvað fannst ykkur um Mortal Kombat? Endilega látið okkur vita! Fleiri Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir eru í vændum, segið okkur bara hvað við eigum að taka næst!
Þátturinn er í boði Elko Gaming og Le Kock.
Fleiri þættir af Tölvuleikjaspjallið
- 295. Wolverine (2026)30. september 2026
- 294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?22. september 2026
- 293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?17. september 2026
- 292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september10. september 2026
- 291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif28. ágúst 2026
- Prufuþáttur28. júlí 2026
