67. Ratchet & Clank: Rift Apart
Goðsagnirnar eru komnar aftur!
Í þessum samstarfsþætti okkar við Elko Gaming köfum við ofan í nýjasta Ratchet & Clank leikinn, en hann heitir Rift Apart!
Félagarnir eru í miðjum hátíðarhöldum þegar erkióvinurinn Dr. Nefarious ræðst AFTUR á þá og stelur byssunni Dimensionator – byssa sem Clank lagaði fyrir vin sinn svo hann gæti mögulega fundið aðra af sinni tegund. Allt fer stórkostlega til andskotans þegar víddir blandast saman og hliðstæða Ratchet úr annarri vídd – kvenkyns lombax að nafni Rivet, hjálpar þeim félögum að kippa raunveruleikanum í liðinn.
Arnór Steinn og Gunnar ræða allt um þennan frábæra leik. Byssurnar, heimana, grafíkina, allt sem Playstation 5 býður upp á (og það er MARGT). Gunnar náði að platína leikinn fyrir þáttinn – náði Arnór því?
Þátturinn er í boði Elko Gaming og Le Kock.
Fleiri þættir af Tölvuleikjaspjallið
- 295. Wolverine (2026)30. september 2026
- 294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?22. september 2026
- 293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?17. september 2026
- 292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september10. september 2026
- 291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif28. ágúst 2026
- Prufuþáttur28. júlí 2026
