61. Draugurinn í Tsushima II
Í þessum spoiler fyllta þætti kafa Arnór Steinn og Gunnar dýpra ofan í meistaraverkið Ghost of Tsushima. Það er nóg til að ræða enda klóruðu þeir bara rétt á yfirborðið í síðasta þætti.
Við viljum ítreka að allar hliðar leiksins eru ræddar í þaula í þessum þætti. Ef hafið ekki spilað Ghost neitt og viljið fara algjörlega blint í hann þá mælum við frekar með því að hlusta á fyrri þátt okkar (nr. 12).
Hins vegar geta allir hlustað á umræðuna okkar um Ghost of Tsushima: Legends. Sú umræða (ásamt smá bónus umræðu um hvað Arnór er duglegur að svara bottum á Instagram) hefst á tímastimplinum 01:02:40.
Við ræðum hér allar sögurnar í leiknum, alla karakterana, hver er raunverulegi vondi kall leiksins og almennt um hvað okkur finnst eftir að hafa klárað allt klabbið.
Þátturinn er samstarfsþáttur við Elko Gaming. Hann er einnig í boði veitingastaðarins Le Kock.
Fleiri þættir af Tölvuleikjaspjallið
- 295. Wolverine (2026)30. september 2026
- 294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?22. september 2026
- 293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?17. september 2026
- 292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september10. september 2026
- 291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif28. ágúst 2026
- Prufuþáttur28. júlí 2026
