48. Cyberpunk II
Í þætti vikunnar, sem er samstarfsþáttur við Elko og Elko Gaming, ræðum við aftur um Cyberpunk 2077!
Við tókum góða umræðu um hann rétt eftir að hann kom út en núna hefur margt vatn runnið til sjávar. Búið er að laga ýmist (alls ekki allt) með nýju uppfærslunni og umræðan hefur batnað – allavega aðeins. Góður vinur Tölvuleikjaspjallsins, Daníel Freyr Swenson, betur þekktur sem Hype-málaráðherra Cyberpunk er meðstjórnandi vikunnar.
Arnór Steinn og Gunnar taka dýpri umræðu við Danna um margt og mikið. Sagan, lúkkið, spilunin, „life choices“ og annað sem við ræddum ekki síðast. Þáttur þessi er laus við spoilera en við vörum hlustendur samt við! Í seinni helming þáttarins förum við frekar djúpt í söguna og ákvarðanir sem þú tekur í leiknum. Ef þú hefur ekkert spilað Cyberpunk og vilt fara algjörlega blint í leikinn þá förum við kannski of djúpt. Ef þú hefur spilað leikinn eitthvað aðeins og ert jafnvel efins um að prófa hann aftur – þá skaltu hlusta!
Við þökkum Elko aftur kærlega fyrir samstarfið og ykkur hlustendum fyrir að vera svona frábær!
Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!
Fleiri þættir af Tölvuleikjaspjallið
- 295. Wolverine (2026)30. september 2026
- 294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?22. september 2026
- 293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?17. september 2026
- 292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september10. september 2026
- 291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif28. ágúst 2026
- Prufuþáttur28. júlí 2026
