26. Star Wars: Squadrons
Hversu mikið langar þig til að fljúga X-Wing eða Tie Fighter og fljúga um geiminn? Núna er það hægt!
Í þessum samstarfsþætti við Elko Gaming ræðum við um Star Wars Squadrons! Hann kom út fyrir stuttu síðan og þar er spilað geimflaugabardaga í fyrstu persónu! Það hljómaði spennandi þegar við töluðum stuttlega um það í síðasta Stjörnustríðsþætti (númer 7) og það hljómar spennandi núna! Leikurinn gerist stuttlega eftir atburði Return of the Jedi og uppreisnarherinn hefur breyst í Nýja Lýðveldið. Veldið er enn til staðar þrátt fyrir að Palpatine keisari sé dauður.
Þú velur þér tvær spilanlegar persónur, eina í liði Nýja Lýðveldisins og eina í liði Veldisins. Sagan skiptist á milli þessara tveggja sjónarhorna og maður flýgur fjórum geimflaugum hjá hvorri hlið.
Arnór Steinn og Gunnar ræða hér leikinn í þaula, bæði söguna og multiplayer hliðina. Hvað fannst þér um Star Wars Squadrons?
Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!
Fleiri þættir af Tölvuleikjaspjallið
- 295. Wolverine (2026)30. september 2026
- 294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?22. september 2026
- 293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?17. september 2026
- 292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september10. september 2026
- 291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif28. ágúst 2026
- Prufuþáttur28. júlí 2026
