23. Portal
Nostalgíukast vikunnar er í boði Tölvuleikjaspjallsins!
Hefur þig ekki alltaf langað til þess að fara í gegnum ógeðslega steikta þrautabraut með einhverskonar gátta-byssu á meðan tölvukerfi niðurlægir þig og kallar þig morðingja? Ef svo er, þá er Portal leikurinn fyrir þig!
Fyrsti Portal leikurinn kom út árið 2007 og sló rækilega í gegn. Þar spilar þú sem Chell, en hún prufukeyrir gáttabyssuna í gegnum nokkuð margar þrautabrautir á meðan tölvukerfið GLADoS kallar þig öllum illum nöfnum. Í næsta leik ert þú aftur Chell. Þá eru fleiri borð, skemmtilegri þrautir og annað morðótt vélmenni að hóta þér öllu illu.
Arnór Steinn og Gunnar ræða hér báða Portal leikina og áhrifin sem leikirnir höfðu. Hvað finnst þér, kæri hlustandi? Standast þeir tímans tönn eða eru þeir barn síns tíma?
Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!
Fleiri þættir af Tölvuleikjaspjallið
- 295. Wolverine (2026)30. september 2026
- 294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?22. september 2026
- 293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?17. september 2026
- 292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september10. september 2026
- 291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif28. ágúst 2026
- Prufuþáttur28. júlí 2026
