22. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir II: Hitman myndirnar
Hefur þig alltaf langað til að horfa á allar þær ömurlegu tölvuleikjakvikmyndir sem til eru en þorir ekki að taka skrefið? H
afðu ekki áhyggjur, því að Arnór Steinn og Gunnar hjá Tölvuleikjaspjallinu horfa á þær fyrir þig og gera svo þátt!
Í dag ræða þeir um tvær myndir. Gunnar horfði á Hitman myndina frá 2007 þar sem Timothy Olyphant rakaði hausinn sinn og skaut fullt af fólki sem hinn goðsagnakenndi leigumorðingi. Arnór horfði á Hitman: Agent 47 frá árinu 2015 þar sem Rupert Friend rakaði hausinn sinn og skaut svo fullt af fólki sem, já, sami goðsagnakenndi leigumorðinginn.
Þeir hafa sitt að segja um þessar ... tja ... ekki góðu myndir, en þeim tekst þó alltaf að finna eitthvað gott til að segja.
Hefur þú séð aðra hvora? Jafnvel báðar? Hvaða aðrar ömurlegu tölvuleikjakvikmyndir dettur þér í hug?
Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!
Fleiri þættir af Tölvuleikjaspjallið
- 295. Wolverine (2026)30. september 2026
- 294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?22. september 2026
- 293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?17. september 2026
- 292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september10. september 2026
- 291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif28. ágúst 2026
- Prufuþáttur28. júlí 2026
