19: Bónusþáttur! Tölvuleikir og heimsfaraldur II
Ertu í sóttkví? Heimavinnandi út af heimsfaraldrinum?
Hentu þá þessum bónusþætti af Tölvuleikjaspjallinu í eyrað og hlustaðu á Arnór Stein og Gunnar bulla! Við gerðum svipað í þætti 8, hér ræðum við leiki sem okkur finnst sniðugt að prófa þegar maður neyðist til að vera heima vikunum saman vegna heimsfaraldursins. Þeir ræða m.a. hvað þeir eru að spila í dag og taka fyrir nokkra leiki sem eru góð tímaeyðsla.
Við viljum líka nota tækifærið og fá að heyra betur í hlustendum. Eruð þið búin að þurfa að hanga heima dögunum saman einhverntímann frá því að heimsfaraldurinn tók yfir? Endilega látið okkur vita, segið okkur hvað þið spiluðuð og hvernig ykkur gekk!
Tölvuleikjaspjallið óskar öllum hlustendum sínum góðs gengis í þessu ömurlega ástandi. Saman sigrumst við á þessu. Hlýðum yfirvöldum og verum góð hvort við annað!
Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!
Fleiri þættir af Tölvuleikjaspjallið
- 295. Wolverine (2026)30. september 2026
- 294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?22. september 2026
- 293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?17. september 2026
- 292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september10. september 2026
- 291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif28. ágúst 2026
- Prufuþáttur28. júlí 2026
