14. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir: Super Mario Bros og Street Fighter
Hver er versta tölvuleikjakvikmynd sem þú hefur séð?
Við höfum séð andskoti margar og því ákváðum við að henda í nýja þáttategund sem við ætlum að kalla "Ömurlega Tölvuleikjakvikmyndir"!
Hér horfir Arnór Steinn á eina mynd, Gunnar á aðra og svo kynna þeir myndirnar fyrir hvor öðrum. Við tölum um hvað þær eru ömurlegar, hvort það sé eitthvað gott í þeim og svo í lokin hvort við mælum með þeim.
Gunnar fékk þann heiður að horfa á allra fyrstu tölvuleikjakvikmyndina, en hún heitir Super Mario Bros og er (mjög lauslega) byggð á Super Mario leikjaseríunni.
Arnór Steinn horfði á Street Fighter myndina sem er byggð á Street Fighter seríunni.
Báðar myndirnar eru í stuttu máli hrikalegar, en önnur þeirra er bara nokkuð skemmtileg þrátt fyrir það. Hvor þeirra ætli það sé?
Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!
Fleiri þættir af Tölvuleikjaspjallið
- 295. Wolverine (2026)30. september 2026
- 294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?22. september 2026
- 293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?17. september 2026
- 292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september10. september 2026
- 291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif28. ágúst 2026
- Prufuþáttur28. júlí 2026
