Röddin er eitt sterkasta persónueinkenni okkar. En hvaða áhrif hefur það á manneskju að missa röddina? Við ræðum við Eygló sem glímir við raddleysi og fáum að heyra hvaða aðferðir gagnast best við að endurheimta röddina.
Hvað er æskilegt að vera lengi með snuð? Hvaða áhrif hefur stíft tunguband? Hvað þýðir að vera með veikleika á munnsvæði? Sonja og Halldís kafa vel í þessi mál.
Skjátími! Heit kartafla. Hver eru áhrif skjátíma á málþroska? Er ég vont foreldri ef ég leyfi barninu mínu að horfa á skjá? Hvað fer barnið mitt á mis við þegar ég leyfi því að horfa? Halldís og Tinna kafa djúpt í málin í þætti dagsins.
Hvað á ég að segja við barnið mitt? Er ég að spyrja of mikið? Hvenær á ég að byrja að lesa fyrir barnið mitt? Halldís og Tinna fara yfir málin í þætti dagsins og gefa góð ráð.
Dagur talþjálfunar er 6. mars. Hrafnhildur Halldórsdóttir, talmeinafræðingur á Geðheilsumiðstöð barna er gestur þáttarins og ræddi um málþroskaröskun DLD. Hver eru einkennin? Hvernig er hægt að styðja við þessi börn og þurfa öll börn með DLD að fara í talþjálfun
Hvað eru Tröppur? Hvað er talmeinafræði? Hvað gera talmeinafræðingar? Hvar kynntust Tinna og Halldís og afhverju ákváðu þær að leggja stund á þessi fræði? Svör við þessu og fleira til í fyrsta þætti hlaðvarpsins Tröppum.