Það var maraþonþema í Bose stúdíóinu í dag, töluðum um Valencia blokkina, NY maraþonið og veltum því fyrir okkur hvort við værum farin að hafa það of gott. Umræðunni varðandi dvínandi skráningu í hlaup verður svarað í þættinum ásamt ótrúlega mörgu öðru!
Það er endalaust hægt að tala um hlaup. Ný æfingavika býður upp á nýjar áskoranir, nýjar hugleiðingar, nýjar vörður til þess að láta sig hlakka til aftur og aftur og aftur!
Bose stúdíóið var stútfullt af meðlimum Út að hlaupa að þessu sinni. Kóresk skýrsla, bakgarðurinn gerður upp, hvað þarftu að hlaupa mikið til þess að kalla þig hlaupara?
Bibba mætti í Bose stúdíóið og gerði upp hlaupasumarið með okkur. Einnig var Suður Kóresk skýrsla á boðstólum beint úr höfuðstaðnum. Mælum með að hlusta!
Dorrit á Esjunni, Þórsmerkurþrennan og vaskir Eyjaskokksmenn sem gerðu sér ferð í dalinn. Þetta ásamt upphitun fyrir Vatnsenda einvígið og margt fleira á boðstólum í dag!