Helgi Áss – TR á toppnum og stórátök fram undan í skákheiminum
Það er nóg um að vera í skákheiminum þessa dagana! Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson sest við skákborðið hjá Kristjáni Erni Elíassyni og fer yfir það helsta sem gerðist á Íslandsmóti skákfélaga um síðustu helgi.
TR er á toppnum, en hvernig verður framhaldið? Hvaða skákmenn komu mest á óvart og hverjir eru líklegir til afreka í vor?
Síðan er sjónum beint út í heim, þar sem Caruana er í sviðsljósinu, Evrópumót taflfélaga fram undan og tveir tvítugir stórmeistarar búa sig undir að berjast um heimsmeistaratitilinn.
Og hvað með 49 ára gamla stórmeistarann sem fór til Búdapest án þess að fjölmiðlar tækju eftir því? Þursaflokkurinn á lokaorðið.
Fleiri þættir af Við skákborðið
- Kristján Örn Elíasson & Helgi Áss Grétarsson11. nóvember 2026
- Skáksögur og Birnukaffi – Ólafur S. Ásgrímsson og Jon Olav Fivelstad28. október 2026
- Sveinbjörn Jónsson - skákmaður, hagyrðingur og trillukarl úr Súgandafirði21. október 2026
- Hverjir fara upp? – Gauti Páll Jónsson og Gunnar Freyr Rúnarsson7. október 2026
- Björn Þorfinnsson: Ólympíuskák, Asíuveldin og skák á Íslandi1. október 2026
- Erum við í raun öll ein skákfjölskylda? - Björn Þorfinnsson, Gunnar Freyr Rúnarsson, Sigurður Þórðarson og Haukur Hauksson23. september 2026






