Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía
„Soldið eins og ef Prúðuleikararnir myndu sjá um kynfræðslu,“ segir Margrét Erla Maack, sviðslistakona og ein af driffjöðrum fullorðinssirkússins Sex Ed sem frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu annað kvöld. Í verkinu sameinast íslenska kabarettsenan senunni frá New York, en bandaríski hópurinn Visceral Abstractions lýsir sér sem absúrdísku sirkus- og brúðuleikhúskollektívi sem blandar saman brúðum, líkama, loftfimleikum, húmor og súrrealískri sviðslist. Við ræðum þetta og meira til við Margréti Erlu í þætti dagsins; líkamleika á tímum gervigreindar, áhrif hægri sveiflu á burlesque heiminn, fæðingarþunglyndi og fíflaskap.
Einnig verður rætt við Unu Sveinbjarnardóttur um nýlega plötu hennar Ea Fantasíu, sem hljóðrituð var um hávetur í Reykholtskirkju og svo heyrum við rýni í nýja ljóðabók Jakobs Stachowiak, Meðan borgin blánar.
Fleiri þættir af Víðsjá
- Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill6. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Víðsjá þrítug30. september 2026
- Víðsjá þrítug30. september 2026