Víðsjá

RÚV

Menning & listir

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Fullkomnun (frh.), Hrafnkell Sigurðsson og Hjá Leyningsvötnum/rýni

Þátturinn í gær var lagður undir eina bók: Fullkomnun eftir Vincenzo Latronico í þýðingu Þóru Arnórsdóttur. Fullkomnun kom út á Ítaliu 2022 og hefur farið sigurför um heiminn síðan. Í bókinni segir Latronico sögu ungs pars sem eyðir mikilli orku í að gera umhverfi sitt fallegt og deila þeirri fegurð á samfélagsmiðlum. Þau Halla og Tómas fengu til sín þrjá góða gesti í gær til að ræða þessar bækur en halla ræddi einnig við þýðandann, Þóru Arnórsdóttur. Heyrum það samtal í þættinum. Nýverið opnaði á Kjarvalsstöðum yfirlitssýning á verkum Hrafnkels Sigurðssonar. Sýningin nefnist X og vísar þar í ákveðinn skurðpunkt á ferli Hrafnkels og sömuleiðis í rómverska tölustafinn tíu, en sýningin er sú tíunda í röð árlegra yfirlitssýninga sem haldnar hafa verið í Vestursal Kjarvalsstaða. Á sýningunni sjást lykilverk úr ferli Hrafnkels í bland við ný, aðallega ljósmyndir þar sem mannlegt inngrip í náttúruna er meginstefið, en Hrafnkell segist vinna meira fyrir framan myndavélina en fyrir aftan hana. Þá rýnir Gauti Kristmansson í nýja ljóðabók Hannesar Péturssonar, Hjá Leyningsvötnum.

Fullkomnun e. Vincenzo Latronico/ Svipmynd af bók

Víðsjá hefur verið með hugann við bók síðustu daga: Fullkomnun eftir Vincenzo Latronico sem kom fyrst út á Ítalíu 2022. Hún var tilnefnd til Booker-verðlauna í fyrra og kom nýverið út í íslenskri þýðingu Þóru Arnórsdóttur. Í bókinni segir Latronico sögu ungs pars sem leitar hamingjunnar í heimi sem hefur færst að miklu leyti yfir á internetið. Þau vinna á netinu og hafa komið sér fyrir í Berlín í rótlausum heimi innflytjenda, en líta þó líta ekki beint á sig sem innflytjendur. Anna og Tom eru af þúsaldarkynslóðinni, vinir þeirra eru að flytja í eigið húsnæði, gifta sig og eignast börn, en þau er í sjálfskipaðri útlegð langt frá heimahögum. Að fullkomna áreynslulaust lífið virðist vera markmið þeirra og þau eru dugleg við að deila myndum af huggulegri íbúð með monsterum og fullkomnu kaffi með ristuðu avocado súrdegisbrauði. Bókin er óður til Hlutanna eftir George Perec sem kom út árið 1965 í Frakklandi og fjallar um ungt par í leit að hamingjunni í neyslusamfélagi eftirstríðsáranna í París. Þáttur dagsins er lagður undir samtal um Fullkomnun með Þorvaldi Sigurbirni Helgasyni skáldi, Magneu Guðmundsdóttur arkitekt og Birni Teitssyni borgarfræðingi. Við ræðum svo við Þóru Arnórsdóttur þýðanda verksins í Víðsjá á morgun.

Erla Þórarinsdóttir í Listval, Grettissaga, Natasha S.

„Þetta er frá tímabili, miklu breytingaskeiði hvað varðar okkar heimsmynd. Og það hefur mikið slæðst inn hérna . Það er Gaza, Grindavík, kólóníalismi og terrorismi. Og bara plís lets talk about peace. Þetta slæðist inn á meðan maður er að teikna, en þegar ég er að teikna þá kem ég mér í ástand, bara einbeitingu,“ segir Erla Þórarinsdóttir sem opnaði nýverið sýninguna Enduróm í Listval. Þar sýnir hún teikningar og lágmyndir þar sem hún leitast við að láta verkin óma til áhorfandans, verka á hann og jafnvel virkja. Einnig málverk, með sterkum litum og blaðsilfri, sem komu til hennar líkt og úr undirdjúpunum, og sem umbreytast með tíma og endurspegla þá birtu sem býðst. Við hittum Erlu í þætti dagsins. Við ræðum einnig við Brynju Þorgeirsdóttur sem tekur þátt í málþingi um Grettissögu í Eddu, á vegum Árnastofnunar og Miðaldastofu Háskóla Íslands á laugardag. Og í pistli dagsins fjallar Natsha S. um eigið tilhugalíf, stefnumótasíður og feðraveldið.

KOK sýningarstjórnun, Tom Waits, Enginn deyr í Ikea/rýni

„Sýningarstjóri er aðili sem tekur þátt í því að miðla til áhorfenda og vera í þessu samneyti á milli listaverka, áhorfenda og listamanna. Sýningarstjórinn er ákveðin ljósmóðir, eða rökkurmóðir,“ segir Þórhildur Tinna Sigurðardóttir um hlutverk sýningarstjórans, en hún ásamt þeim Becky Forsythe og Helenu Sólveigar Aðalsteinsbur eru KOK, kúratora kollektív sem vill efla samtal um stöðu sýningarstjórnunar hér á landi. Þær standa að baki málþingi um sýningarstjórnun og faglega þróun hennar í Norræna húsinu á morgun. Við ræðum við þær í þætti dagsins um hlutverk sýningarstjórans í íslensku samhengi. Hvað er sýningarstjóri og ætti hann kannski að kallast Kúrator? Við heyrum einnig rýni Fríðu Þorkelsdóttur í nýja skáldsögu Hallgríms Helgasonar, Enginn deyr í Ikea og hugað verður að lagi eftir Tom Waits sem fangar mögulega allan hans feril.

Ítalskir bíódagar, Brothætt og Þegar Trölli stal jólunum/rýni.

Ítalskir bíódagar verða í Bíó Paradís 12-14. nóvember þar sem boðið eru upp á úrval ítalskra kvikmynda, gamlar perlur í bland við nýjar raddir. Ása Baldursdóttir, dagsrkárstjóri Bíó Paradís segir frá fjölbreyttri dagskrá helgarinnar í Víðsjá dagsins, sem lituð er ítölskum tónum. Þriðji og síðasti ritúalinn í verkaseríu Steinunnar Knúts, Brothætt fer fram í Dómkirkjunni í kvöld. Ritúalinn nefnist Fyrirgefningin og er settur saman úr nafnlausum játningum frá almenningi sem verða fluttar af hinsegin kórnum og hljómsveitinni Evu í formi víxlsöngs. Víðsjá hitti Steinunni og Völu Höskuldsdóttur tónskáld í kirkjunni sem segja frá þeim heilandi mætti sem felst í því að játa brot sín og fyrirgefa sér og öðrum. Þá fáum við leikhúsrýni, Sjöfn Asare skellti sér í Borgarleikhúsið, á nýja uppfærsu sígildrar jólasögu Dr. Seuss, Þegar Trölli stal jólunum. Sjöfn lýsir sinni upplifun á græna sérvitringnum sem þolir illa jólin og ráðabruggi hans í þætti dagsins.

Guðmundur Lúðvík hönnuður / Svipmynd

Í Víðsjá dagsins munum við tala um stól. Hvað gerir góðan stól, hvernig hannar maður stól og hvernig fer hann í framleiðslu? „ Stóllinn þarf að vera hæglátur og hógvær, og bara virka.Hann má ekki öskra; hér er ég og sjáið mig. Því ef það standa hundrað stólar í rými og allir eru að öskra og æpa þá verða svo mikil læti.“ Þetta segir Guðmundur Lúðvík sem var á dögunum tilnefndur til Hönnunarverðlauna íslands fyrir Backflip stólinn sem hann hannaði í samstarfi við danska hönnunarfyrirtækið HAY. Og það má segja að hér lýsi hann hinni skandinavísku fagurfræði sem hófst dönsku módernistunum þar sem notagildi, einfaldleiki og efnisval skiptir öllu máli. Guðmundur Lúðvík hefur búið og starfað í Danmörku frá aldamótum, þar sem hann lærði hönnun við konunglegu akademínuna. Áður hafði hann lært smíði og myndlist hér heima. Guðmundur Lúðvík er gestur Víðsjár í Svipmynd og segir frá áhuga sínum á fellistólum sem hófst þegar hann var í vinnunni með mömmu sinni tíu ára gamall. Við ræðum einnig menntunina sem var allskonar, fyrirmyndir úr fjölskyldunni, danskan hönnunarheim og lífið í Vejle.

Þér gæti líka líkað...