Erla Þórarinsdóttir í Listval, Grettissaga, Natasha S.
„Þetta er frá tímabili, miklu breytingaskeiði hvað varðar okkar heimsmynd. Og það hefur mikið slæðst inn hérna . Það er Gaza, Grindavík, kólóníalismi og terrorismi. Og bara plís lets talk about peace. Þetta slæðist inn á meðan maður er að teikna, en þegar ég er að teikna þá kem ég mér í ástand, bara einbeitingu,“ segir Erla Þórarinsdóttir sem opnaði nýverið sýninguna Enduróm í Listval. Þar sýnir hún teikningar og lágmyndir þar sem hún leitast við að láta verkin óma til áhorfandans, verka á hann og jafnvel virkja. Einnig málverk, með sterkum litum og blaðsilfri, sem komu til hennar líkt og úr undirdjúpunum, og sem umbreytast með tíma og endurspegla þá birtu sem býðst. Við hittum Erlu í þætti dagsins.
Við ræðum einnig við Brynju Þorgeirsdóttur sem tekur þátt í málþingi um Grettissögu í Eddu, á vegum Árnastofnunar og Miðaldastofu Háskóla Íslands á laugardag. Og í pistli dagsins fjallar Natsha S. um eigið tilhugalíf, stefnumótasíður og feðraveldið.
Fleiri þættir af Víðsjá
- Fullkomnun (frh.), Hrafnkell Sigurðsson og Hjá Leyningsvötnum/rýni19. nóvember 2026
- Fullkomnun e. Vincenzo Latronico/ Svipmynd af bók18. nóvember 2026
- Fullkomnun e. Vincenzo Latronico/ Svipmynd af bók18. nóvember 2026
- Erla Þórarinsdóttir í Listval, Grettissaga, Natasha S.17. nóvember 2026
- KOK sýningarstjórnun, Tom Waits, Enginn deyr í Ikea/rýni16. nóvember 2026
- KOK sýningarstjórnun, Tom Waits, Enginn deyr í Ikea/rýni16. nóvember 2026