Staðan í stjórnmálunum, húsnæðismarkaðurinn og leiðtogafundur
Kafað verður í fréttamál vikunnar í Vikulokunum sem eru á sínum stað í útvarpi og á vef strax á eftir fréttum klukkan 11:00.Í fyrsta hluta þáttarins verður rætt um stöðuna í stjórnmálunum, vistaskipti Ingvars Þóroddssonar og náttúru- og innviðagjald. Þar eru gestir Eiríkur Björn Björgvinsson þingmaður Viðreisnar og Ingveldur Anna Sigurðardóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins.Í öðrum hluta ræða Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Páll Pálsson fasteignasali stýrivaxtaákvörðun, húsnæðismarkaðinn og fjárlög.Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum og Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði, eru gestir í þriðja hluta þáttarins. Þar verður fjallað um fund leiðtoga Rússlands, Kína og Bandaríkjanna.
Fleiri þættir af Vikulokin í mynd
- Samgöngumál, Grindavík og tæknitruflanir14. nóvember 2026
- Verslunarrekstur, virkjanir og stjórnmálin7. nóvember 2026
- Uppsagnir í Reykjavík, álögur á Suðurlandi og hótanir gegn lögreglufólki31. október 2026
- Mótmæli í Evrópu, menntamál og tíðindi af þingi24. október 2026
- Samkeppnismál, staðan í stjórnmálunum og aðferðir Seðlabankans17. október 2026
- Kjarasamningar, leigubremsa og forsetaslagur ASÍ10. október 2026
