Vikulokin í mynd

RÚV

Fréttir

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Þátturinn er einnig aðgengilegur í Spilara RÚV og í beinni útsendingu á Rás 1 og 2 alla laugardaga.

Staðan í stjórnmálunum, húsnæðismarkaðurinn og leiðtogafundur

Kafað verður í fréttamál vikunnar í Vikulokunum sem eru á sínum stað í útvarpi og á vef strax á eftir fréttum klukkan 11:00.Í fyrsta hluta þáttarins verður rætt um stöðuna í stjórnmálunum, vistaskipti Ingvars Þóroddssonar og náttúru- og innviðagjald. Þar eru gestir Eiríkur Björn Björgvinsson þingmaður Viðreisnar og Ingveldur Anna Sigurðardóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins.Í öðrum hluta ræða Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Páll Pálsson fasteignasali stýrivaxtaákvörðun, húsnæðismarkaðinn og fjárlög.Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum og Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði, eru gestir í þriðja hluta þáttarins. Þar verður fjallað um fund leiðtoga Rússlands, Kína og Bandaríkjanna.

Samgöngumál, Grindavík og tæknitruflanir

Kafað verður í fréttamál vikunnar í Vikulokunum sem eru á sínum stað í útvarpi og á vef strax á eftir fréttum klukkan 11:00.Í fyrsta hluta verður rætt við Ara Edwald, borgarfulltrúa Miðflokksins og Pál Val Björnsson, kennara og fyrrverandi þingmann, meðal annars um stöðu Grindavíkur, samgöngumál og umferðartafir í Reykjavík.Bára Hlynsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og Guðmundur Jóhannsson tæknispekúlant ræða truflanir hjá Microsoft, hneyksli hjá Nvidia og tölvuleikinn Grand Theft Auto 6 í öðrum hluta.Í þriðja hluta verður rætt við Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra um samgöngumál og byggðaáætlun.

Verslunarrekstur, virkjanir og stjórnmálin

Verslunarrekstur, virkjanir og staðan í stjórnmálunum verða rædd í Vikulokum dagsins.Viðskiptaumhverfið og verslunarrekstur hér á landi verður til umræðu í fyrsta hluta Vikulokanna. Gísli Þór Sigurbergsson, eigandi Fjarðarkaupa og Guðrún Jóhannesdóttir, eigandi Kokku ræða Ingvar Þór Björnsson.Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, og Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, ræða raforkuframleiðslu og virkjunarkosti í öðrum hluta þáttarins.Í lokin mæta Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík, og Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og fara yfir stöðuna í stjórnmálunum.

Uppsagnir í Reykjavík, álögur á Suðurlandi og hótanir gegn lögreglufólki

Aðhaldsaðgerðir og uppsagnir hjá Reykjavíkurborg eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi og formaður hagræðingarhóps meirihlutans og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, mætast í fyrsta hluta þáttarins.Í öðrum hluta þáttarsins mæta Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Haraldur Þór Jónsson, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, til að ræða um auknar álögur á atvinnulíf á Suðurlandi og breytingar á loftbrú.Í síðasta hlutanum ræða Guðmundur Fylkisson lögreglumaður og Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna um hótanir og ofbeldi í garð lögreglumanna, nýja löggæsluáætlun og sameiningu embætta.

Mótmæli í Evrópu, menntamál og tíðindi af þingi

Mótmælin í Evrópu, PHP-málið, hugmyndir um breytingar á rekstri bókasafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, menntamál og tíðindaleysi á þingi er meðal þess sem er til umræðu í vikulokunum í dag.Gestir í fyrsta hluta eru Björn Jón Bragason, kennari við Verzlunarskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík, Jökull Sólberg Auðunsson, frumkvöðull, og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB.Í öðrum hluta er rætt við Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um nýja aðgerðaáætlun í menntamálum og breytingar á einkunnakerfi.Í þriðja hluta ræða þingmennirnir Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki, og Víðir Reynisson, Samfylkingu, um tíðindaleysi á þingi, menntamál og Litla spítalann.

Samkeppnismál, staðan í stjórnmálunum og aðferðir Seðlabankans

Umfjöllun Kveiks um meinta markaðsmisnotkun Ölgerðarinnar, ummæli varaseðlabankastjóra um aðgerðir til að auka atvinnuleysi og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar eru meðal þess sem verður í brennidepli í Vikulokunum.Rætt verður við Mána Pétursson, umboðsmann og stjórnarmann KSÍ, Svandísi Svavarsdóttur, ritstjóra og fyrrverandi ráðherra, og Sigurð Þ. Ragnarsson jarð- og veðurfræðing í fyrsta hluta, meðal annars um Ölgerðina, illviðri í vikunni og úrslitaleik um að komast á HM í Brasilíu.Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ræðir Seðlabankann, verkalýðshreyfinguna og kjaramál í öðrum hluta.Að lokum verður rætt við Grím Grímsson, þingmann Viðreisnar, og Ingibjörgu Isaksen, þingmann Framsóknar, um stöðuna í stjórnmálunum og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar.

Kjarasamningar, leigubremsa og forsetaslagur ASÍ

Kjarasamningar, staðan á vinnumarkaði, leigubremsa, forsetakjör ASÍ, heimsókn Marco Rubio og fleira verða til umræðu í Vikulokunum í dag.I. hluti: Kjarasamningar, vinnumarkaður og leigubremsaAldís Guðný Sigurðardóttir, sérfræðingur í samningatækniMár Wolfgang Mixa, prófessor í viðskiptafræðiSigurður Pétursson, sagnfræðingur og kennari við Menntaskólann að LaugarvatniII. hluti: ASÍGeorg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU og frambjóðandi til embættis forseta ASÍArnaldur Grétarsson, sérfræðingur í stafrænni miðlun og frambjóðandi til embættis forseta ASÍIII. hluti: Vikan á þingiSandra Sigurðardóttir, þingmaður ViðreisnarBergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins

Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður

Kjaramál og atvinnuleysi, Landsvirkjun og samtal forseta Íslands og ungs fólks eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Þátturinn er í þremur hlutum.I. hluti: Kjaramál og atvinnuleysiArna Lára Jónsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndarBjörgin Víkingsson, framkvæmdastjóri BónusFinnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍII. hluti: Landsvirkjun og Hörður ArnarsonAndrés Jónsson, almannatengill og stjórnendaráðgjafiGuðmundur Hálfdánarson, sagnfræðingurIII. hluti: Rætt um samtal, gervigreind og friðHalla Tómasdóttir, forseti ÍslandsLísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta

Atvinnuvegaráðherra, pólitík í íþróttum, skilaboðin og skítapotturinn

Í fyrsta hluta Vikuloka dagsins verður rætt um stöðuna í stjórnmálunum, skítapottinn og skilaboðin. Viðmælendur eru Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdastjóri Athygli og fyrrverandi aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur, Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Sjúkratryggingum Íslands og fyrrverandi aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttir og Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur.Í öðrum hluta er rætt við Willum Þór Þórsson, forseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, meðal annars um Heimi Hallgrímsson, Ísrael, forvarnir og landsleik.Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra er gestur þriðja hluta, þar verður meðal annars rætt um boðað náttúru- og innviðagjald, hvalveiðar og nýja stofnun atvinnuveganna.

Kosningalög, bankaskattur og verkfall flugvirkja

Í fyrsta hluta var rætt við Vilhjálm Árnason bæjarstjóra Reykjanesbæjar og Karólínu Helgu Símonardóttur bæjarfulltrúa í Hafnarfirði um húsnæðismál Tækniskólans sem hafa verið mikið til umræðu undanfarna daga. Þau ræddu einnig fyrirhugaða brottvísunarstöð, breytingar á kosningalögum og verkfall flugvirkja.Bankaskattur sem boðaður var í nýju fjárlagafrumvarpi var í brennidepli í öðrum hluta þar sem rætt var við Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þingmann Flokks fólksins, Jón Guðna Ómarsson, bankastjóra Íslandsbanka, og Gylfa Magnússon hagfræðiprófessor.Að lokum var rætt við Óskar Einarsson, formann Flugvirkjafélags Íslands, um kjaradeilu við Icelandair og fyrirhugað verkfall.

Þér gæti líka líkað...