Diljá Mist Einarsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Pawel Bartoszek
Stríðið á milli Íran og Ísrael hefur staðið yfir í níu daga. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað inngrip í stríðið, mögulega hernaðarlegt. Diplótmatísk lausn er líka möguleg með aðkomu Bandaríkjanna. Á meðan geisar stríðið á Gaza og berst Ísraelsher nú á tveimur vígstöðvum.
Átök hafa einnig geisað hér heima fyrir, það er að segja pólitísk átök á Alþingi. Stjórnarandstaðan berst gegn nokkrum málum ríkisstjórnarinnar af fullri hörku, sérstaklega veiðigjöldunum og bókun 35, og liggja þinglok ekki fyrir. Um hvað er deilt?
Þingmennirnir Pawel Bartozek úr Viðreisn, sem er formaður utanríkismálanefndar, og Diljá Mist Einarsdóttir úr Sjálfstæðisflokknum, sem er nefndarmaður í utanríkismálanefnd og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi þingmaður og fyrrverandi utanríkisráðherra, ræða þessi mál í Vikulokunum .
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Fleiri þættir af Vikulokin
- Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður3. október 2026
- Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður3. október 2026
- Atvinnuvegaráðherra, pólitík í íþróttum, skilaboðin og skítapotturinn26. september 2026
- Atvinnuvegaráðherra, pólitík í íþróttum, skilaboðin og skítapotturinn26. september 2026
- Kosningalög, bankaskattur og verkfall flugvirkja19. september 2026
- Kosningalög, bankaskattur og verkfall flugvirkja19. september 2026