Vikulokin

RÚV

Fréttir

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Nálgast má Vikulokin í mynd í beinni útsendingu á ruv.is á laugardagsmorgnum, og í sjónvarps spilara RÚV.

Verslunarrekstur, virkjanir og stjórnmálin

Verslunarrekstur, virkjanir og staðan í stjórnmálunum verða rædd í Vikulokum dagsins. Viðskiptaumhverfið og verslunarrekstur hér á landi verður til umræðu í fyrsta hluta Vikulokanna. Gísli Þór Sigurbergsson, eigandi Fjarðarkaupa og Guðrún Jóhannesdóttir, eigandi Kokku ræða Ingvar Þór Björnsson. Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, og Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, ræða raforkuframleiðslu og virkjunarkosti í öðrum hluta þáttarins. Í lokin mæta Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík, og Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og fara yfir stöðuna í stjórnmálunum.

Uppsagnir í Reykjavík, álögur á Suðurlandi og hótanir gegn lögreglufólki

Aðhaldsaðgerðir og uppsagnir hjá Reykjavíkurborg eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi og formaður hagræðingarhóps meirihlutans og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, mætast í fyrsta hluta þáttarins. Í öðrum hluta þáttarsins mæta Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Haraldur Þór Jónsson, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, til að ræða um auknar álögur á atvinnulíf á Suðurlandi og breytingar á loftbrú. Í síðasta hlutanum ræða Guðmundur Fylkisson lögreglumaður og Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna um hótanir og ofbeldi í garð lögreglumanna, nýja löggæsluáætlun og sameiningu embætta.

Mótmæli í Evrópu, menntamál og tíðindi af þingi

Mótmælin í Evrópu, PHP-málið, hugmyndir um breytingar á rekstri bókasafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, menntamál og tíðindaleysi á þingi er meðal þess sem er til umræðu í vikulokunum í dag. Gestir í fyrsta hluta eru Björn Jón Bragason, kennari við Verzlunarskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík, Jökull Sólberg Auðunsson, frumkvöðull, og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB. Í öðrum hluta er rætt við Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um nýja aðgerðaáætlun í menntamálum og breytingar á einkunnakerfi. Í þriðja hluta ræða þingmennirnir Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki, og Víðir Reynisson, Samfylkingu, um tíðindaleysi á þingi, menntamál og Litla spítalann.

Samkeppnismál, staðan í stjórnmálunum og aðferðir Seðlabankans

Umfjöllun Kveiks um meinta markaðsmisnotkun Ölgerðarinnar, ummæli varaseðlabankastjóra um aðgerðir til að auka atvinnuleysi og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar eru meðal þess sem verður í brennidepli í Vikulokunum. Rætt verður við Mána Pétursson, umboðsmann og stjórnarmann KSÍ, Svandísi Svavarsdóttur, ritstjóra og fyrrverandi ráðherra, og Sigurð Þ. Ragnarsson jarð- og veðurfræðing í fyrsta hluta, meðal annars um Ölgerðina, illviðri í vikunni og úrslitaleik um að komast á HM í Brasilíu. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ræðir Seðlabankann, verkalýðshreyfinguna og kjaramál í öðrum hluta. Að lokum verður rætt við Grím Grímsson, þingmann Viðreisnar, og Ingibjörgu Isaksen, þingmann Framsóknar, um stöðuna í stjórnmálunum og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar.

Kjarasamningar, leigubremsa og forsetaslagur ASÍ

Kjarasamningar, staðan á vinnumarkaði, leigubremsa, forsetakjör ASÍ, heimsókn Marco Rubio og fleira verða til umræðu í Vikulokunum í dag. I. hluti: Kjarasamningar, vinnumarkaður og leigubremsa Aldís Guðný Sigurðardóttir, sérfræðingur í samningatækni Már Wolfgang Mixa, prófessor í viðskiptafræði Sigurður Pétursson, sagnfræðingur og kennari við Menntaskólann að Laugarvatni II. hluti: ASÍ Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU og frambjóðandi til embættis forseta ASÍ Arnaldur Grétarsson, sérfræðingur í stafrænni miðlun og frambjóðandi til embættis forseta ASÍ III. hluti: Vikan á þingi Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins

Þér gæti líka líkað...