16. Afbrýðsemi, stúptengsl og fl.
Send us Fan Mail
Fengum spurningu frá hlustanda sem við leituðumst við að svara. Afbrýðsemi út í fortíð maka. Það getur verið erfitt að burðast með tilinnnguna afbrýðisemi hún getur grafið undan trausti í parsambandinu. Við ýtum makanum meira frá okkur og oft getur hann upplifað að það sé eitthvað að honum eða upplifað makann með lítið sjálfstraust. Bæði virkar ekki vel á parsambandið.
Hvað er til ráða? Tala saman, tengjast tilfinningalega og gefa maka sínum rými til að vinna með óöryggið. Samkennd og skilningur er það sem virkar best hérna.
Við fórum einnig inn á umræðuna um stjúptengsl og hvernig við höfum tæklað það á okkar heimili.
Það sem virkar best á flestar tegundir af verkefnum / vandamálum í parsambandinu er samkennd og að setja sig í spor maka/fjölskyldumeðlims. Þannig fjarlægjum við spennuna og getum horft á vandamálið sem verkefni sem fjölskyldan er að vinna að saman.
Hvað ef þetta er alls ekki persónulegt?
Fleiri þættir af Von Ráðgjöf - Lausnin Hlaðvarp
- Átakapunktur 221. ágúst 2025
- Átakspunktur #1 – Að skilja sjónarhorn maka (Gottman-Rapoport aðferðin)11. mars 2025
- Heilbrigð sál í hraustum líkama – Heildræn nálgun að vellíðan 2 af 223. janúar 2025
- Heilbrigð sál í hraustum líkama – Heildræn nálgun að vellíðan 1 af 26. janúar 2025
- Jólaþáttur um það sem getur verið erfitt við jólin19. desember 2024
- Jólaþáttur hefðir og væntingastjórnun4. desember 2024
