Umfjöllun ritstjórnar Morgunblaðsins fyrir Sveitastjórnarkosningar 2026.
X26 - Árborg: oddvitar mætast
12. maí, 2026
Oddvitar fjögurra framboða í Árborg takast á í myndveri Morgunblaðsins. Fjármál sveitarfélagsins, álögur á íbúa og fyrirtæki, uppbygging innviða, leikskólamál, atvinnuþróun og framtíð byggðanna við ströndina eru á dagskrá.
X26 - Eyjafjarðarsveit: Vilja tempra vöxtinn
12. maí, 2026
Í Eyjafjarðarsveit er mikil ásókn í lóðir og húsnæði en oddvitar beggja framboðslista í sveitarfélaginu leggja áherslu á að vöxturinn verði ekki of hraður.
X26 - Garðabær: ólíkar áherslur oddvita
11. maí, 2026
Skiptar skoðanir eru meðal oddvita í Garðabæ um Borgarlínu, uppbyggingu, fasteignagjöld og mögulegt samstarf eftir kosningar. Þetta kemur fram í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is þar sem frambjóðendur sex lista í Garðabæ tókust á um stöðu bæjarins og…
X26 - Skagafjörður: Íbúafjölgun stóru áskorunina
11. maí, 2026
Frambjóðendur fjögurra lista í Skagafirði eru sammála um að fjölgun íbúa sé eitt stærsta verkefni sveitarfélagsins á komandi kjörtímabili. Þeir greinir hins vegar á um hvernig best sé að ná því markmiði, hvernig halda eigi utan um framkvæmdir og hvort…
X26 - Dalvík: Hitaveitan, lóðir og leikskólar stóru málin
9. maí, 2026
Skipulagsmál, leikskólar, hitaveita og uppbygging samfélagsins eru meðal helstu umræðuefna í Dalvíkurbyggð í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Fjögur framboð bjóða nú fram í sveitarfélaginu, í fyrsta sinn í langan tíma.
X26 - Akureyri: heitt í kolunum á borgarafundi
7. maí, 2026
Atvinnumál, Norðurorka, sjókvíaeldi í Eyjafirði, málefni eldri borgara og möguleg sameining sveitarfélaga voru meðal helstu umræðuefna á fjölmennum borgarafundi Morgunblaðsins á Akureyri í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí.
X26 - Húnabyggð: Vilja virkja tækifærin
7. maí, 2026
Sameining sveitarfélaga, fjármál, atvinnumál, orkumál og framtíð innviða voru meðal helstu umræðuefna þegar rætt var við oddvita framboðanna þriggja í Húnabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
X26 - Fjallabyggð: vatn, göng og stjórnsýsla í fókus
7. maí, 2026
Sveitarstjórnarmál í Fjallabyggð snúast nú að stórum hluta um grunninnviði, samgöngur, skólamál og endurreisn stjórnsýslunnar eftir erfitt kjörtímabil.
X26 - Vilja blása til sóknar í Húnaþingi vestra
6. maí, 2026
Morgunblaðsmenn eru mættir í Húnaþing vestra á ferð sinni um Norðurland fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí. Sveitarfélagið varð til 7. júní 1998 en fékk núverandi mynd árið 2012 þegar Bæjarhreppur sameinaðist því.
X26 - Seltjarnarnes: oddvitar takast á
5. maí, 2026
Leikskólamál, fjármál bæjarins, samgöngusáttmálinn og framtíðaruppbygging á Seltjarnarnesi voru meðal helstu ágreiningsefna í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí.