X26 - Hafnarfjörður: oddvitaslagur
Oddvitar framboðsflokkanna í Hafnarfirði mætast í myndveri Morgunblaðsins og mbl.is og fara yfir stóru málin þar í bæ.
Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson stýra umræðunum og spyrja oddvitaefnin spjörunum úr um þau málefni sem helst brenna á bæjarbúum og þeirra sýn á næsta kjörtímabil komist þeir til valda.
Sex framboð bjóða fram í Hafnarfirði.
Í kappræðunum mætast þau Valdimar Víðisson, bæjarstjóri og oddviti Framsóknar, Karólína Helga Símonardóttir fyrir Viðreisn, Orri Björnsson fyrir Sjálfstæðisflokk, Einar Geir Þorsteinsson fyrir Miðflokk, Guðmundur Árni Stefánsson fyrir Samfylkingu og Ester Bíbí Ásgeirsdóttir fyrir Vinstrið.
Fleiri þættir af X26 Sveitarstjórnarkosningar
- X26 - Reykjavík: oddvitar berjast um borgina15. maí 2026
- X26 - Reykjavík: Baráttuframboðin takast á15. maí 2026
- X26 - Kópavogur: Oddvitaslagur14. maí 2026
- X26 - Reykjanesbær: vaxtaverkir bæjarfélagsins12. maí 2026
- X26 - Árborg: oddvitar mætast12. maí 2026
- X26 - Eyjafjarðarsveit: Vilja tempra vöxtinn12. maí 2026
