Besta sætið

bestasaetid

Íþróttir

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

2. júlí - Þýskt þrot

2. júlí - Þýskt þrot

2júl

Farið var um víðan völl í Besta sætinu í dag. Birgir Olgeirsson, fréttamaður á Sýn, var sérstakur gestur þar sem rætt var um HM, England, Þýskaland, NBA, Bestu deildina og landsleik kvöldsins.

1. júlí - Rómans Stefáns Árna og Deschamps

1. júlí - Rómans Stefáns Árna og Deschamps

1júl

HM var mikið til umræðu í Besta sætinu í dag. Besta deildin kom við sögu sem og stór tíðindi úr Bónus deildinni í körfubolta. Valur Páll Eiríksson, Stefán Árni Pálsson og Andri Broddason ræddu málin í Besta sætinu í dag. HM-leikir gærkvöldsins voru til umræðu sem og þeir sem fram undan eru í dag. Tíðindi bárust úr Garðabæ í dag hvað þjálfaramálin í fótboltanum varðar og einnig bárust þjálfaratíðindi úr Grindavík þar sem Lárus Jónsson er tekinn við sem aðstoðarþjálfari í körfuboltanum. Hlýða má á þátt dagsins í spilaranum sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

29. júní: Þjálfaraskipti hjá Val og mikilvægir leikir hjá landsliðinu

29. júní: Þjálfaraskipti hjá Val og mikilvægir leikir hjá landsliðinu

29jún

Í Besta sætinu í dag er farið yfir stórtíðindin af Hlíðarenda. Hermann Hreiðarsson hefur verið látinn fara sem þjálfari karlaliðs Vals í fótbolta og nú þegar er eftirmaður hans fundinn. Fleiri tíðindi úr Bestu deildinni, mikilvægt verkefni karlalandsliðsins í körfubolta sem og HM þar sem að útsláttarkeppnin er hafin. Allt saman í Besta sætinu.

26. júní: Brakandi fersk tíðindi og er rígurinn dauður?

26. júní: Brakandi fersk tíðindi og er rígurinn dauður?

26jún

Það var við hæfi að opna þáttinn á slagara með Sálinni, Stebbi Hilmars sextugur og gír í mönnum. Nóg að ræða í dag. Er rígurinn milli Blika og Víkinga dauður? Víkingar, í hægagangi völtuðu yfir Blikana í gær og liðin mætast aftur á sunnudaginn. Línur eru teknar að skýrast á HM og styttist í útsláttarkeppnina. Umferðin framundan í Bestu deildinni, Formúla 1, glæný tíðindi af landsliðsmanni Íslands og ég veit ekki hvað og hvað. Skylduhlustun

24. júní: Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi?

24. júní: Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi?

24jún

Besta sætið mætir alltaf funheitt aftur. Sumarfílingur í hópnum og nóg að ræða. Toppbaráttan í Bestu deild kvenna í fótbolta veldur ekki vandræðum. Það voru vendingar fyrir stutt hlé í deildinni sem farið verður yfir. Þá eru leikar teknir að æsast á HM í fótbolta.

22. júní: Besta lið sögunnar?

22. júní: Besta lið sögunnar?

22jún

Víkingar virðast óstöðvandi í Bestu deild karla og KR-ingar þurfa að vinna Skagamenn í kvöld til að halda lífi í titilbaráttunni. FH, Þór, KA og Stjarnan eru hins vegar í ansi slæmum málum. Martin Hermannsson er Þýskalandsmeistari eftir ótrúlega endurkomu og Hollendingar fljúgandi á HM.

19. júní: Er hann samt íþróttamaður ársins?

19. júní: Er hann samt íþróttamaður ársins?

19jún

Í Besta sætinu var farið yfir frumraun Íslendings á Opna bandaríska mótinu í golfi karla, HM í fótbolta og komandi umferð í Bestu deild karla. Freyr Alexandersson er orðinn nýr þjálfari Rosenborgar og strákarnir okkar í íslenska handboltalandsliðinu fá stuðning í Þýskalandi.

18. júní: Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open

18. júní: Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open

18jún

Stór dagur í íþróttasögu Íslendinga í dag. Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur þátttöku á U.S. Open risamótinu í golfi í kvöld, fyrstur Íslendinga. Við förum yfir það sem og HM í fótbolta þar sem að England mætir af fídómskrafti til leiks. Stelpurnar okkar eru með gullið tækifæri á að tryggja sér sæti á HM í fótbolta í BRASILÍU á næsta ári og spennan er mikil í Mjólkurbikar kvenna. Átta liða úrslitunum lýkur í kvöld.

16. júní - Drónasvif yfir best rekna klúbbi landsins

16. júní - Drónasvif yfir best rekna klúbbi landsins

16jún

Það er risakvöld í Bestu deildinni þar sem KR-ingar heimsækja Víkinga í einkar veglegri útsendingu þar sem Nablinn verður á svæðinu og drónamyndavél fangar stemninguna á uppseldum toppslag. HM í fótbolta, Gunnlaugur Árni á Opna bandaríska, og gleðifréttir Garðbæinga voru einnig til umræðu í Besta sætinu.

15. júní - Verður Þjóðarhöllin tilbúin fyrir HM 2031?

15. júní - Verður Þjóðarhöllin tilbúin fyrir HM 2031?

15jún

„Loksins, loksins“ hrópuðu margir íþróttaáhugamenn í dag og Besta sætið þar með talið.   Teikningar fyrir nýja Þjóðarhöll hafa verið opinberaðar en athygli vekur að hvergi eru verklok áætluð. Hvenær verður þessi nýja höll eiginlega tilbúin? Margt fleira var rætt í þætti dagsins af Besta sætinu. HM er í fullum gangi og fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn kemur frá Túnis. Fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn úr Bestu deildinni er Jökull Elísabetarson en mun Sigurður Höskuldsson fylgja honum fljótt eftir? Svo er spurning hvort það sé snilld eða alveg glatað að sjá tvö Lengjudeildarlið í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Menn gátu ekki sammælst um það.

Þér gæti líka líkað...