Tveir á toppnum

Tveir á toppnum

TV & Film

Blaðamennirnir Oddur Ævar og Tóti eru Tveir á toppnum og halda áfram að ræða kvikmyndir, sjónvarp og allt þar á milli í óbeinu framhaldi Bíóvarpsins sem dó með Fréttablaðinu. „Tveir á toppnum er óvenju góð flétta [...] þar sem mannlegi þátturinn hefur ekki gleymst.“ - Morgunblaðið 1987 - tveiratoppnumpodcast@gmail.com.

#165-Meiriháttar kombakk!

Tveir á toppnum bæta fyrir messufall síðustu viku með því að troða bókstaflega ÖLLU í þennan 70 mínútna endurkomuþátt eftir langt veikindaleyfi Tóta. Hvað gerði Oddur á meðan og er eitthvað til í því að Tóti hafi verið meðferð og logið sig veikan á meðan? Þetta er þátturinn með öll svörin!

#164-Ekkjuvogur og Apple TV á Íslandi

Emmy-verðlaunin eru í brennidepli þáttarins og þá sérstaklega sigurvegari hátíðarinnar, Apple TV, sem er nú loks aðgengilegt á Íslandi með eðlilegum og fullkomlega löglegum hætti. Fagnaðarlæti Odds yfir þessum tímamótum eru dálítið ýkt en fastasti fastagestur þáttarins og maðurinn sem uppgötvaði Ekkjuvogsþættina á Íslandi, Arnar Tómas Valgeirsson, nálgast tíðindi vikunnar af sinni alkunnu yfirvegun.

#163-Frjálst og óháð bull

Frjáls tími hjá Tveimur á toppnum þar sem Oddur og Tóti leyfa sér stjórnlausan og ómarkvissan kjaftavaðal. Reyna að selja notuð nagladekk og barnaföt á milli þess sem hrært er í gláppottum líðandi stundar, fréttastofu Stöðvar 2/Sýnar er minnst og Tóti klárar Mickey Rourke fyrirlestur síðasta þáttar.

#162-Síðasti þáttur fyrir Dómsdag

Tveir á toppnum breyta um stefnu í síðasta þætti sínum fyrir Dómsdaginn 29. ágúst þegar alþjóðastjórnmálafræðingurinn Oddur Ævar er fenginn til að ræða kosti og galla ESB-aðildar. Þó finnst einnig pláss til að minnast Dollyjar Parton og Tims Curry en Tóti er síðan stöðvaður í miðjum fyrirlestri um Mickey Rourke.

#161 - House of the Dragon 3

Útvarpsstjarnan Nanna Guðrún Sigurðardóttir á Rás 2 stígur niður á hlaðvarpsplanið og ræðir 3. vertíð House of the Dragon í Tveimur á toppnum, sjónvarps- og kvikmyndahlaðvarpi upplýsta og djúppælda fólksins! Einnig: Hayden Panettiere, Stallone á Menningarnótt og listi yfir þolgóðar hlaupamyndir fyrir þau sem nenna ekki að púlla Dustin Hoffman og hlaupa Reykjavíkurmaraþonið.

#160 - Spider-Man: Brand New Day

Áttfættu hlustendur! Velkomin að Marvel-troginu þar sem Spider-Man: Brand New Day er veislukosturinn að þessu sinni. Oddur sleikir út um á meðan Arnar Tómas talar enga tæpitungu þegar hann kennir honum borðsiði.  Einnig: Tóti tengir ESB-tryllinginn við Invasion of the Body Snatchers. Sérstakur heiðurgestur: Stefán Atli Sigtryggsson, okkar Marvel-maður í Svíþjóð.

#159 - Talking Bollocks!

Hefðbundin dagskrá trufluð og þætti #159 er droppað á miðvikudegi svo Oddur geti kastað sér head first ofan í Marvel-trogið á fimmtudaginn. Stjórnlaust og tilgangslaust blaður Tveggja á toppnum þar sem verslunarmannahelgin, bláir gaskútar og alls konar annað er tæklað ásamt skúbbi vikunnar: HVAÐA ÞJÓÐÞEKTTA MENNINGARDROTTNING GEKK ÚT AF THE ODYSSEY Í HLÉI????

#158 - The Odyssey

Þátturinn sem er búinn að vera u.þ.b. 3200 ár á leiðinni er loksins í höfn! Christopher Nolan er tekinn á beinið og Ódysseifskviðu hans snúið á alla kanta í epískum panel með Illuga Jökulssyni, sem kannast eitthvað aðeins við frumtextann sem myndin byggir á, og Birgi Olgeirssyni, sem hefur aldrei verið jákvæðari en að þessu sinni.

#157 - Frjáls tími og glápskýrslur

Þátturinn um allt sem hefur ekki komist að í fjarveru Odds ásamt tveimur stórfréttum sem skekið hafa heimsbyggðina; andlát Sam Neill og íslenskt Love Island.

#156 - Stallone 80 ára

Sylvester Stallone, okkar eigin Sly, fagnar 80 ára afmæli í dag, 6. júlí, og ekki annað hægt en sýna honum þann sjálfsagða sóma að rjúfa hefðbundna dagskrá með sérstökum þætti. Valur Gunnarsson, sagnfræðingur, rithöfundur og jafnaldri fyrstu Rocky-myndarinnar, stígur aftur í hringinn og fer með Tóta yfir langan, glæstan en þó brokkgengan feril rómuðustu hasarhetju síðustu áratuga í 130 mínútur sem gerir þáttinn að langlengsta  Tveir á toppnum þætti allra tíma.