The Hunger Games (2012-2015)

· Kvikmyndir

“Eldar eru að kvikna! Ef við brennum, brennur þú með okkur!”
Hungurleikaþríleikinn kannast margir við enda fór hann sigurför um heiminn bæði í bókaformi og í kikmyndaformi (þó að þær hafi vissulega verið fjórar). Serían fjallar um Katniss Everdeen, táningsstúlku sem býr við sultarmörk í fátæku umdæmi undir afarstjórn Snow forseta, sem verður ólíkleg byltingarhetja eftir að hún er valin til þess að keppa í hinum ómannúðlegu Hungurleikum.
Tommi og Íris fá til sín Emmu og Sunnevu Maríu, dyggan hlustanda og lestrarhest á heimsmælikvarða til þess að ræða þessa seríu, tengslin á milli bókanna og myndanna, stóru þemun í seríunni, persónusköpun og kvikmyndatækni myndanna í einu allsherjar aðdáendamálæði. Margar mikilvægar spurningar vakna eins og: Hver er uppáhaldskeppandinn sem er ekki frá umdæmi 12? Hvernig myndir þú hanna Quarter Quell? Og hvernig í ósköpunum notarðu kökuskreytingar til þess að lifa af
Festið á ykkur hermiskaða-nælurnar og búið ykkur undir hressandi umræður upp á líf og dauða.

Efnisyfirlit:
00:00 - Leikhús og bækur
12:51 - Jennifer Lawrence
25:30 - Hvílíkur leikhópur!
41:48 - Katniss Everdeen
52:44 - Bókabreytingar
01:00:19 - Catching Fire
01:42:29 - Mockingjay: Part 1
01:58:34 - Mockingjay: Part 2
02:14:47 - Hegðun í bíósal

Bíófíklar

Úr hlaðvarpinu

Bíófíklar

Bíófíklar Hlaðvarp

Allir þættir

Fleiri þættir af Bíófíklar