Equilibrium (2002)
Hvernig væri (dystópíu)heimurinn ef allir yrðu lagalega skildugir til þess að deyfa allar tilfinningar sínar? Hvernig var sú tíð í trendi þegar óbærilegt magn af sci-fi hasarmyndum upp úr aldamótunum reyndu að feta í fótspor fyrstu Matrix myndarinnar? Hvernig púllar Christian Bale það svona ótrúlega vel að vera bæði fullkomlega sannfærandi í tilfinningaleysinu og jafnframt verið svona næmur, hlýr - og kúl?
Er Equilibrium almennt svöl mynd yfirhöfuð? Fastagestirnir Einar Michaelsson og Hafsteinn Laxdal völdu þessa mynd sérstaklega - ónefndum Bíófíkli til smávægilegrar mæðu - og færa sín tilfinningaríku rök fyrir ágæti hennar.
Bale á þarna merkileg kaflaskil á ferlinum, og er Equilibrium þarna á milli krefjandi rulla American Psycho en áður en hann gerðist formlega að Batman eða hasarhetju. Bale er samt umkringdur merkilega góðum leikhópi og Sean Bean á meðal þeirra með undarlega lítinn skjátíma (…). Leikstjórinn Kurt Wimmer tjaldar eins miklu til og mögulega getur fyrir lítið fjármagn. Afraksturinn breytir þó ekki staðreyndinni að myndin skítfloppaði í kvikmyndahúsum á sínum tíma og gagnrýnendur að megnu til ypptu öxlum.
Tíminn hefur þá leitt í ljós rísandi og rótsterkan költ-status myndarinnar. Umdeilanlega var hún á undan sinni samtíð (og kynnti fyrir áhorfendum sérkennilegu bardagalistina ‘Gun-Kata’) eða kannski lítið annað en heilalaust og hallærislegt frat. Jafnvel hvort tveggja.
Botnkeyrum tilfinningaskalann til að leysa út ástríðuna og leggjum í dýrindis krufningu, með fáeinum útúrdúrum…
Efnisyfirlit:
00:00 - "Vill vera Matrix!"
06:19 - Minimal en 'grandiose'
11:59 - UltraViolet
17:04 - 'Sense offender'
27:46 - Smá (....) útúrdúr
44:46 - Lost media (reprise!)






