#175 - Góður Q3 hjá Icelandair en mikill mótbyr í kortunum að óbreyttu – sóknarfæri í einfaldari flugflota til framtíðar – Bogi Nils Bogason
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um stöðu félagsins í tilefni af uppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung 2026. Farið er yfir helstu niðurstöðu uppgjörsins og spáð í spilin varðandi næstu mánuði og misseri. Bogi Nils fer líka yfir stöðu kjarasamningaviðræða við flugvirkja, flugmenn og flugfreyjur sem hafa gengið mjög illa og ekki sér fyrir endann á. Hátt eldsneytisverð og minnkandi varnir félagsins gagnvart eldsneytiskaupum gætu reynst félaginu þungbærar á næstu mánuðum ef ekkert breytist. Í þættinum er einnig rætt um ýmis álitamál sem verið hafa í fréttum eins og kaup Icelandair á flugrekstrarleyfi á Möltu, ETS gjöldin og skattahækkanir, breytingar á flugflota félagsins, fraktflutninga og fleira.
Fleiri þættir af Flugvarpið
- #177 - Stöðugar áskoranir og fjölþættar ógnir í flóknum flugrekstri um allan heim hjá Air Atlanta – Ólafur Örn Jónsson18. nóvember 2026
- #176 – ETS viðskiptakerfið í endurskoðun – engin varanleg lausn í hendi en vilji til að framlengja sérlausn fyrir flugið – Kristinn Már Reynisson og Ágúst Elvar Bjarnason4. nóvember 2026
- #174 – Stýrir rannsóknardeild flugslysa innan ICAO - Eykst að sóst sé eftir aðkomu ICAO vegna milliríkjadeilna og til að tryggja trúverðugleika - Þormóður Þormóðsson16. október 2026
- #173 – Skynsemi og öllum landsmönnum til heilla að staðsetja eina þyrlu LHG á Akureyri. – Sigurður Ásgeirsson og Njáll Trausti Friðbertsson9. október 2026
- #172 – Skilgreina þarf hlutverk LHG í öryggis- og varnarmálum, en brýnasta verkefnið er að fá fjórðu þyrluna segir forstjórinn í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar – Georg Kr. Lárusson4. október 2026
- #171 – „Ekki tapa gleðinni” – Ein af síðustu flugferðum PLAY rifjuð upp þegar 1 ár er liðið frá falli félagsins - Una Gísladóttir og Bjarni Jónsson30. september 2026





