#177 - Stöðugar áskoranir og fjölþættar ógnir í flóknum flugrekstri um allan heim hjá Air Atlanta – Ólafur Örn Jónsson
Í þættinum er rætt við Ólaf Örn Jónsson flugrekstrarstjóra Air Atlanta um starfsemi félagsins og hið gríðarstóra leiðakerfi sem félagið rekur út um allan heim. Rætt er um þær fjölmörgu öryggisógnanir sem félagið glímir við í sínum rekstri á hverjum degi, en flugleiðir og áfangastaðir félagsins eru víða nálægt átakasvæðum. Eftir að stríð braust út í Íran fyrr á þessu ári hefur félagið þurft að meta ástandið nánast á hverjum degi í miðausturlöndum og gera ýmsar ráðstafanir vegna flugs nærri og um yfirlýst hættusvæði. Loftrýmum ríkja hefur verið lokað á stórum svæðum sem hefur lengt flugleiðir og GPS truflanir eru nánast daglegt viðfangsefni svo nokkuð sé nefnt. Þá hefur gríðarleg hækkun á flugvélaeldsneyti haft mikil áhrif á síðustu mánuðum sem og tollastríð milli stórvelda heimsins. ´
Fleiri þættir af Flugvarpið
- #176 – ETS viðskiptakerfið í endurskoðun – engin varanleg lausn í hendi en vilji til að framlengja sérlausn fyrir flugið – Kristinn Már Reynisson og Ágúst Elvar Bjarnason4. nóvember 2026
- #175 - Góður Q3 hjá Icelandair en mikill mótbyr í kortunum að óbreyttu – sóknarfæri í einfaldari flugflota til framtíðar – Bogi Nils Bogason24. október 2026
- #174 – Stýrir rannsóknardeild flugslysa innan ICAO - Eykst að sóst sé eftir aðkomu ICAO vegna milliríkjadeilna og til að tryggja trúverðugleika - Þormóður Þormóðsson16. október 2026
- #173 – Skynsemi og öllum landsmönnum til heilla að staðsetja eina þyrlu LHG á Akureyri. – Sigurður Ásgeirsson og Njáll Trausti Friðbertsson9. október 2026
- #172 – Skilgreina þarf hlutverk LHG í öryggis- og varnarmálum, en brýnasta verkefnið er að fá fjórðu þyrluna segir forstjórinn í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar – Georg Kr. Lárusson4. október 2026
- #171 – „Ekki tapa gleðinni” – Ein af síðustu flugferðum PLAY rifjuð upp þegar 1 ár er liðið frá falli félagsins - Una Gísladóttir og Bjarni Jónsson30. september 2026





