Helena Reynis: „Mér datt ekki í hug að ég gæti lent í ofbeldissambandi.“
Myndlistarkonan Helena Reynisdóttir flutti heim til Íslands frá Berlín eftir um fimm ára dvöl. Flutningurinn markaði ákveðin tímamót í lífi hennar. Þá var hún nýkomin úr fimm ára sambandi þar sem hún var beitt andlegu ofbeldi. Hún ákvað nýlega að stíga fram í myndbandi á TikTok og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Andlegt ofbeldi er gjarnan falið, tabú að tala um og mikil skömm sem getur fylgt því, en þó hún hafi ekki verið með líkamlega áverka þá var hún undir lok sambandsins búin að missa mikla þyngd, byrjuð að missa hárið og komin með útbrot um líkamann. Orkan nánast engin en erfiðast var að horfast í augu við að hún væri í ofbeldissambandi. Helena hefur alla tíð verið sjálfsörugg með sterkt bakland og datt aldrei í hug að hún gæti lent í þessum aðstæðum. En það er einmitt ástæðan fyrir því að hún ákvað að stíga fram og segja sögu sína í Fókus, viðtalsþætti DV. Hún vill vekja athygli á einkennum andlegs ofbeldis og vonandi hjálpa einhverjum í sömu stöðu.
Fleiri þættir af Fókus
- Saga Dröfn: „Það hrundi allt eftir að hann lamdi mig“23. janúar 2026
- Linda Pé - Lykillinn á bak við varanlegan árangur15. janúar 2026
- Kristín Þóra á rauðu ljósi: „Það var engin leið til baka án þess fá faglega aðstoð“9. janúar 2026
- Sigga Ózk: Frá Söngvakeppninni til Wicked31. desember 2025
- Áramótaspá Ellýjar Ármanns fyrir 202625. desember 2025
- Margrét Sól: Sagði upp verkfræðistarfinu hjá Össuri til að elta drauminn19. desember 2025






