Fram og til baka í Taiwan
Fram og til baka er víðförull þáttur og í þessari sérstöku páskaútgáfu tyllum við niður fæti í höfuðborg Tævan, Taipei. Felix Bergsson segir okkur af upplifun sinni af þessari mögnuðu eyju og fólkinu sem þar býr.
Gestur þáttarins, Þorsteinn Kristinsson stjórnmálafræðingur, býr einmitt í Taipei ásamt eiginkonu og nýfæddum syni. Þorsteinn, eða Stenni eins og hann er yfirleitt kallaður, segir okkur af sjálfum sér, uppvextinum í Hafnarfirði og lífinu í Taiwan en víkur einnig að áhugaverðri sögu landsins, sambandinu við Kína og stjórnmálunum.
Komið með þegar við flökkum í orðsins fyllstu merkingu fram og til baka
Fleiri þættir af Fram og til baka
- Ragnar Jónasson, lönd og leyndardómar3. október 2026
- Adda Baldurs knattspyrnuhetja26. september 2026
- Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur19. september 2026
- Snjólaug Lúðvíksdóttir um bestu og verstu uppistöndin12. september 2026
- Bergur Ebbi og öld ímyndunaraflsins5. september 2026
- 10 ára afmæli Improv Ísland og glænýi dúettinn HAUSST29. ágúst 2026